„Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2026 17:16 Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk í bronsleiknum. vísir/vilhelm Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. „
Þetta er fáránlega súrt. Þetta er gríðarlega svekkjandi. Mér fannst mómentið vera þarna. Mér fannst við vera með ákveðið móment í byrjun þar sem við fáum aragrúa dauðafæra og getum komið okkur í góða stöðu og sett þá undir pressu. Í staðinn klikkum við og þeir hafa það nokkuð þægilegt allan leikinn og þetta var svolítið endurtekið efni í fyrri hálfleik, eins og þetta var í Malmö,“ sagði Gísli í samtali við Henry Birgi Gunnarsson og vísaði til eins marks tapsins fyrir Króatíu, 29-30, í fyrsta leik Íslands í milliriðli. Klippa: Viðtal við Gísla Þorgeir „Við vorum aftur aðeins of linir. Boltinn lekur hvað eftir annað inn og mörg svekkjandi mörk sem við fengum á okkur. Við náðum aldrei að setja þá í óþægilega stöðu.“ Sóknarleikur Íslands og Króatíu er býsna ólíkur. Íslendingar treysta meira á gegnumbrot á meðan Króatar skjóta mikið utan af velli. Gísli var þó ekki endilega sammála því að íslenska liðið hefði þurft að hafa meira fyrir mörkunum sínum en það króatíska. „Ég veit það ekki. Þeir spila þessa gríðarlega erfiðu 5-1 vörn sem snýst um það að vera þolinmóður. Það þýðir ekki að stilla upp í eitt skot með fjórar hendur á móti. Það er það sem þessi vörn vill. Við fáum að mínu mati færin sem við viljum fá í þessum leik. Við skoruðum 33 mörk en klikkuðum á 12-13 dauðafærum,“ sagði Gísli. „Ég vil heldur ekki taka neitt frá markverðinum þeirra. Hann er frábær. Ég spila með honum í Magdeburg. Það er eitthvað sem vantaði.“ Tapið í Herning í dag var þriðja tap Íslands fyrir Króatíu á stórmóti á einu ári. Þótt það sé sárt gengur Gísli stoltur frá mótinu. „Mér er ekki skemmt. Ég get orðað það þannig. Þetta er ekkert geðveikt. Þessi leikur mun svíða næstu mánuði en ef við þysjum aðeins út er ég ótrúlega stoltur af þessu jákvæða skrefi sem við tókum sem lið í þessu móti,“ sagði Gísli. „Við erum samstilltari, meira lið, þéttari og allir á sömu blaðsíðu hvað varðar plan og skipulagið okkar. Ég ætla bara að vera stór, stoltur af þessu liði og er spenntur fyrir komandi mótum.“ Viðtalið við Gísla má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58 Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. 1. febrúar 2026 16:46 „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. 1. febrúar 2026 16:44 „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. 1. febrúar 2026 16:30 Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki á móti Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta 2026. Hér má sjá tölfræðina úr leiknum. 1. febrúar 2026 16:28 Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. 1. febrúar 2026 16:00 Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira
„Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58
Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. 1. febrúar 2026 16:46
„Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. 1. febrúar 2026 16:44
„Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. 1. febrúar 2026 16:30
Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki á móti Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta 2026. Hér má sjá tölfræðina úr leiknum. 1. febrúar 2026 16:28
Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. 1. febrúar 2026 16:00