Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. febrúar 2026 19:07 Sandra María hefur verið iðin við kolann á þessu tímabili en fór illa með færin í kvöld. Getty/Marcio Machado Sandra María Jessen þurfti að sætta sig við 2-1 tap með liði 1. FC Köln á útivelli gegn Wolfsburg í 16. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Leikurinn fór af stað með miklum látum. Lineth Beerensteyn tók forystuna fyrir heimalið Wolfsburg eftir aðeins fjórar mínútur en á 22. mínútu jafnaði Köln þökk sé sjálfsmarki Sarai Linder. Eftir að lent undir og eftir að hafa jafnað fékk Sandra María frábær færi til að jafna leikinn eða koma Köln yfir. Hún hitti boltann illa í fyrra skiptið og í seinna skiptið var Sarai Linder, nýbúin að skora sjálfsmark, með slaka sendingu til baka sem Sandra komst inn í en Akureyringnum tókst ekki að klára færið. Bild lýsti leiknum í beinni. Lineth Beerensteyn skoraði síðan annað mark um miðjan seinni hálfleik til að tryggja Wolfsburg sigurinn. Köln er í 8. sæti deildarinnar en Wolfsburg er í 2. sæti, sex stigum frá toppliði Bayern Munchen eftir sigurinn. Sandra María hefur spilað alla 16 leikina í deildinni og skorað 9 mörk auk þess að gefa 1 stoðsendingu. Íris Ómarsdóttir skoraði í tapi gegn Napoli Hin hálfíslenska Íris Ómarsdóttir skoraði mark Fiorentina og minnkaði muninn í 1-2 tapi á heimavelli gegn Napoli í 12. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Íslensku landsliðskonurnar Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiriksdóttir sátu á varamannabekknum. Hlín kom að láni til Fiorentina á dögunum og var í leikmannahópnum í fyrsta sinn. Napoli er í 5. sæti deildarinnar en Fiorentina í 7. sætinu af 12 liðum.
Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira