Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. febrúar 2026 09:28 Clinton-hjónin hafa samþykkt að mæta fyrir þingnefnd sem rannsakar Epstein. Getty/WireImage/Bruce Glikas Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa samþykkt að bera vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar mál Jeffrey Epstein.
Clinton-hjónin höfðu áður neitað að þau myndu aðstoða nefndina við rannsókn málsins og sökuðu formann hennar, fulltrúadeildarþingmanninn og Repúblikanann James R. Comer, um pólitískar ofsóknir. Þá sögðu þau stefnurnar sem gefnar voru út á hendur þeim ólögmætar. Hjónin virðast hins vegar hafa skipt um skoðun eftir að nokkrir Demókratar greiddu atkvæði með Repúblikönum um að mæla með því að ákærur yrðu gefnar út á hendur þeim fyrir að neita að mæta fyrir þingnefndina. Bill Clinton er sagður hafa samþykkt að veita fjögurra tíma viðtal, sem hann hafði áður sagt óviðeigandi enda fordæmalaust að fyrrverandi forseti sé dreginn fyrir þingnefnd með þessum hætti. Lögmenn hjónanna hafa farið fram á að Hillary fái að leggja fram yfirlýsingu í stað þess að mæta fyrir nefndina en segja hana munu svara spurningum ef þess verður krafist. Hún hefur neitað því að hafa nokkurn tímann hitt eða rætt við Epstein. Samkvæmt New York Times hefur Comer hafnað kröfu Bill um að viðtalið verði aðeins fjórir tímar, enda sé forsetanum fyrrverandi „ræðinn“ og væri í lófa lagt að draga skýringar sínar á langinn. Þá hefur hann neitað því að samþykkja að spurningarnar verði eingöngu bundnar við Epstein og heldur því fram að Clinton muni túlka það þröngt þegar að því kemur og neita að svara spurningum sem sannarlega eru málinu viðkomandi. Comer hefur verið sakaður um að beina spjótum sínum að Clinton-hjónunum í viðleitni til að draga athyglina frá tengslum Epstein og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bill Clinton hefur viðurkennt að hafa þekkt Epstein en segist ekki hafa heimsótt alræmda eyju hans og þá hafi hann slitið á öll tengsl við hann fyrir tveimur áratugum.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Bill Clinton Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira