„Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2026 10:32 Ásgeir Örn telur að HSÍ eigi að semja strax um áframhaldandi samstarf við Snorra Stein. Fyrrum landsliðsmaður í handbolta telur að íslenska landsliðið geti farið alla leið á næstu árum. Þá þarf allt að ganga upp en efniviðurinn er nægilega góður. Ísland hafnaði í fjórða sætinu á Evrópumótinu. Liðið hefur ekki komist í undanúrslit á stórmóti frá árinu 2010 og því skráðu drengirnir nöfn sín í sögubækurnar á síðustu tveimur vikum. Leikmenn liðsins eru flestallir á frábærum aldri og því ætti framtíðin að vera björt. „
Svona yfirlýst markmið var mjög líklega að komast í undanúrslitin sem náðist og fjórða sætið er náttúrulega bara frábær árangur. En auðvitað er svekkjandi að tapa svona þessum síðustu tveimur leikjum. Ef við gerum mótið upp svona heilt yfir getum við verið mjög ánægð," segir Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, í Sportpakkanum á Sýn í gær. Ísland komst síðast í undanúrslit árið 2010 á Evrópumótinu í Austurríki. „Það hefur nú ekki gerst það oft heldur bara í sögunni, þannig að ég held að þetta sé bara stórgóður árangur. Póstarnir í þessu liði eru búnir að vera saman töluvert lengi og eru svona búnir að mynda svolítið sterkan kjarna og svo ofan á það eru þeir á toppaldri. Ef að allt gengur upp að þá gætum við séð fram á bara nokkur og vonandi sem flest góð ár fram undan.“ Getum farið alla leið Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari var með samning við HSÍ fram yfir þetta mót. Ásgeir telur líklegt að sambandið semji fljótlega við þjálfarann um áframhaldandi samstarf. „Það er bara vitleysa ef menn eru að hugsa um eitthvað annað. Mér finnst hann bara vera að ná tökum á liðinu núna og búinn að sýna árangur. Þá væri það algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað og bara drífa sig í að skrifa undir nýjan samning við hann.“ Geturðu séð fyrir þér að þetta lið vinni stórmót á næstu þremur til fjórum árum? „Það er margt í spilunum sem byggir undir það að við getum alveg unnið. Við sjáum í undanúrslitunum að við erum ekkert langt frá þessu. Við getum unnið alla á góðum degi en það þarf ógeðslega margt að ganga upp. En ég get alveg séð þetta í draumaheiminum mínum.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira