Stolt siglir skattafleyið Ólafur Adolfsson skrifar 3. febrúar 2026 10:31 „Það var vandlega kannað hver áhrifin væru einmitt á landsbyggðina. Þau voru nettó jákvæð,“ svaraði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðum í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær þegar hermt var upp á hann gríðarleg hækkun á kílómetragjaldi sem venjulegt fólk á landsbyggðinni glímir nú við. Svarið sannaði svo um munar að fjármálaráðherra og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er í engum tengslum við venjulega fólkið sem því var svo umhugað um í kosningabaráttunni. Daði og hans fólk sat í rólegheitum í Reykjavík með reikniblokkina á lofti og komust að því að áhrifin á landsbyggðina yrðu „nettó jákvæð“. Þetta eru væntanlega fréttir fyrir alla þá sem kvarta nú sáran yfir þessum ósanngjarna landsbyggðaskatti en samfélagsmiðlahópar og símatímar eru fullir af harðduglegu fólki úti á landi sem er nú að borga meira en það gerði áður en þessi illa ígrundaði skattur var settur á. Samt bannar Daði Már öllum að nota orðið skattahækkun því það hentar ekki ríkisstjórninni. Fjármálaráðherra og aðrir í þessari ríkisstjórn nefna þessa auknu gjaldtöku „kerfisbreytingu“ og vilja meina að það sé „ekki sanngjarnt“ að bera þetta á borð sem skattahækkun. Eitthvað segir mér að venjulega fólkinu úti á landi finnist bara ekki sanngjarnt hvað það varð allt í einu erfiðara að láta enda ná saman. Það er ekki spurt um sanngirni þar. Fjármálaráðherra gekk svo langt í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær að segja að hann væri hreinlega stoltur af þessari „kerfisbreytingu“ - eða skattahækkun eins og þetta heitir á íslensku. Það er gott þegar menn koma svona hreint fram og standa stoltir í stafni á skattafleyinu. Verðbólga eykst, vextir hækka og atvinnuleysi verður meira á vakt ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Við þessu varaði Sjálfstæðisflokkurinn í umræðu um fjárlög allan desember mánuð og lagði á borð tillögur upp á tugi milljarða í skattalækkanir og sparnað hjá ríkinu. En, skattahækkanir og brotin kosningaloforð urðu vegferð ríkisstjórnarinnar. Er það sanngjarnt? Höfundur er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðvesturkjördæmis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Adolfsson Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
„Það var vandlega kannað hver áhrifin væru einmitt á landsbyggðina. Þau voru nettó jákvæð,“ svaraði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðum í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær þegar hermt var upp á hann gríðarleg hækkun á kílómetragjaldi sem venjulegt fólk á landsbyggðinni glímir nú við. Svarið sannaði svo um munar að fjármálaráðherra og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er í engum tengslum við venjulega fólkið sem því var svo umhugað um í kosningabaráttunni. Daði og hans fólk sat í rólegheitum í Reykjavík með reikniblokkina á lofti og komust að því að áhrifin á landsbyggðina yrðu „nettó jákvæð“. Þetta eru væntanlega fréttir fyrir alla þá sem kvarta nú sáran yfir þessum ósanngjarna landsbyggðaskatti en samfélagsmiðlahópar og símatímar eru fullir af harðduglegu fólki úti á landi sem er nú að borga meira en það gerði áður en þessi illa ígrundaði skattur var settur á. Samt bannar Daði Már öllum að nota orðið skattahækkun því það hentar ekki ríkisstjórninni. Fjármálaráðherra og aðrir í þessari ríkisstjórn nefna þessa auknu gjaldtöku „kerfisbreytingu“ og vilja meina að það sé „ekki sanngjarnt“ að bera þetta á borð sem skattahækkun. Eitthvað segir mér að venjulega fólkinu úti á landi finnist bara ekki sanngjarnt hvað það varð allt í einu erfiðara að láta enda ná saman. Það er ekki spurt um sanngirni þar. Fjármálaráðherra gekk svo langt í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær að segja að hann væri hreinlega stoltur af þessari „kerfisbreytingu“ - eða skattahækkun eins og þetta heitir á íslensku. Það er gott þegar menn koma svona hreint fram og standa stoltir í stafni á skattafleyinu. Verðbólga eykst, vextir hækka og atvinnuleysi verður meira á vakt ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Við þessu varaði Sjálfstæðisflokkurinn í umræðu um fjárlög allan desember mánuð og lagði á borð tillögur upp á tugi milljarða í skattalækkanir og sparnað hjá ríkinu. En, skattahækkanir og brotin kosningaloforð urðu vegferð ríkisstjórnarinnar. Er það sanngjarnt? Höfundur er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðvesturkjördæmis.