Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Sindri Sverrisson skrifar 3. febrúar 2026 21:25 Áhuginn á slag Íslands og Danmerkur í undanúrslitum EM var sögulegur. vísir/Vilhelm Áhugi Íslendinga á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta var gífurlegur og það sýna meðal annars áhorfstölur. Aldrei hafa fleiri horft á íþróttaviðburð hér á landi en þegar Ísland mætti Danmörku í undanúrslitum síðasta föstudag.
Þetta kemur fram á vef RÚV í dag en þar segir að meðaláhorf á undanúrslitaleikinn, þar sem Ísland freistaði þess að komast í úrslitaleik EM í fyrsta sinn, hafi verið 66,4%. Ef miðað er við mannfjölda á Íslandi í byrjun síðasta árs (389.444 íbúar) þýðir það að 258.591 manns hafi að meðaltali horft á leikinn á hverri mínútu í íslensku sjónvarpi. Það er mesta áhorf á íþróttaviðburð á Íslandi en byrjað var að mæla áhorf árið 2008. Áður höfðu leikir Íslands við Króatíu (meðaláhorf 63,1%) og við Slóveníu (62,5%) á Evrópumótinu slegið við metinu sem sett var í fyrsta leik Íslands á HM karla í fótbolta, gegn Argentínu árið 2018, þegar meðaláhorfið var 62,4%. Núna eru sex leikir Íslands af EM 2026 á meðal tíu efstu íþróttaviðburða í íslensku sjónvarpi, fyrir mesta meðaláhorfið. Uppsafnað áhorf (fjöldi þeirra sem horfði á einhverjum tímapunkti á viðburðinn) á leik Íslands og Danmerkur var svo slétt 70% en það hefur hins vegar áður verið meira, til dæmis á HM í fótbolta 2018 og á EM í handbolta 2010. Handball fever in Denmark 🇩🇰Huge TV numbers on Danish TV for the European Championship final🔥More than 2 million viewers tuned in on TV2 at the peak of Denmark’s final against Germany. The average for the match was 1.77 million!The semifinal vs Iceland also peaked above 2… pic.twitter.com/vs40tLsaPU— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) February 3, 2026 Mikill áhugi hjá heimaþjóðinni Áhuginn á EM í handbolta var ekki bara gífurlegur á Íslandi því til að mynda í Danmörku, heimalandi sigurvegaranna, sáu meira en tvær milljónir manna eitthvað af úrslitaleiknum við Þýskaland sem Danir unnu, á heimavelli sínum í Herning. Þannig var það einnig þegar Danir unnu Íslendinga á föstudaginn í undanúrslitunum, svo að um þriðjungur dönsku þjóðarinnar sá þann leik í sjónvarpi. Þá fylgdist hálf milljón danskra sjónvarpsáhorfenda með hátíðarhöldunum við ráðhúsið í Herning í gær.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira