Innviðir grunnskólanna í forgang í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 07:33 Stundum virðist talað um grunnskólann eins og hann eigi að vera ein heildstæð menntastofnun sem öll börn passi í, one size fits all. En svo knýr raunveruleikinn á dyr á morgnana: fötluð börn, börn sem eru nýflutt til landsins, börn sem glíma við fjölþættan vanda, börn sem þurfa ró og skýr mörk, börn sem þurfa aukið öryggi og börn sem þurfa meira rými til að blómstra á eigin forsendum. Og þá er eðlilegt að við spyrjum okkur: Fyrir hverja eru grunnskólar í Kópavogi? Það mæðir gríðarlega mikið á skólasamfélaginu þessa dagana. Réttmætt ákall um aukna hlustun, skilning og aðgerðir. Kerfið er því miður ekki að ná utan um fjölbreytileikann sem við búum við, eins og staðan er í dag. Skóli án aðgreiningar hefur gert ótrúlega margt gott. Til að mynda rofið einangrun, aukið þátttöku og bætt lífsgæði margra barna með fötlun. Hugmyndafræðin hefur vissulega sannað gildi sitt, en hún nær þó ekki utan um öll börn, og það er allt í lagi að viðurkenna það. Ekki annað hvort eða – heldur bæði og Sum börn þurfa mjög sérhæfða umgjörð sem verður einfaldlega ekki leyst innan almenns skólastarfs, þrátt fyrir góðan vilja kennara og annars starfsfólks. Umræðan um skólamál ætti því ekki að snúast um hvort við veljum nærskóla eða sérúrræði, heldur að hafa raunverulegt rými fyrir hvort tveggja. Úrræði eiga að byggjast á þörfum barnsins og við þurfum að gæta þess að festast ekki í hugmyndafræðilegri rörsýn. Allt of margir foreldrar barna sem þurfa sértækan stuðning verja í dag ómældum tíma og orku í að elta uppi þjónustu sem ætti að vera sjálfsögð. Við þurfum að byrja á að hlusta á reynslu og þarfir fjölskyldna og tryggja að kerfið virki í framkvæmd. Síðan þarf fagfólkið að fá skýrt umboð og raunveruleg úrræði til að útfæra lausnir út frá bestu þekkingu og reynslu. Raunverulegt jafnvægi með fjölbreyttum leiðum Bæjaryfirvöld í Kópavogi þurfa að leiða þetta samtal og leita raunhæfra og faglegra lausna um hvernig við mætum ólíkum þörfum okkar fjölbreytta barnahóps. Sérskólar eru ein leið. Til dæmis hafa Brúarskóli, Klettaskóli og Arnarskóli gegnt mikilvægu hlutverki fyrir þau börn sem þar stunda nám og fjölskyldur þeirra. En við verðum líka að horfast í augu við að miklu færri komast að í sérhæfð úrræði en þurfa. Afleiðingin er sú að börn og fjölskyldur sitja of oft eftir í óvissu og álagið færist inn í hverfisskólana, þar sem starfsfólk reynir að brúa bilið án þess að alltaf séu til staðar næg úrræði, fjármagn og fagfólk. Þess vegna þurfum við að efla hverfisskólana með því að skapa rými til að bregðast við áskorunum, hvort sem þær tengjast hegðun, þroska, tengslum, líðan eða geðheilsu barna. Lykilatriðið í þeirri vinnu er þverfaglegt samstarf. Sérfræðingar vinni með kennurum inni í skólunum, í stað þess að allt falli á herðar kennarans eins og svo oft gerist. Fyrstu skrefin hafa nú þegar verið stigin í þessa átt en svo að þetta virki eins og ætlast er til þarf að tryggja nægt fjármagn í útfærsluna. Þverfaglegt samstarf verður að vera nægilega aðgengilegt til að draga úr því að kennarar og skólastjórnendur séu stöðugt að slökkva elda. Prófkjör Viðreisnar í Kópavogi fer fram rafrænt laugardaginn 7. febrúar 2026. Ef þú vilt hafa áhrif hvet ég þig til að taka þátt og kjósa. Frestur til að skrá sig í flokkinn er út daginn í dag, 4. febrúar. Höfundur er frambjóðandi til oddvita Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skóla- og menntamál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira