Símalausir grunnskólar í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 09:30 Í Kópavogi er öflugt skólastarf og við ætlum að tryggja að svo verði áfram. Skólastarf þarf hins vegar að vera í stöðugri endurskoðun með það að markmiði að efla námsárangur og stuðla að umbótum í námi. Grunnskólastarf á Íslandi stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum sem kalla á markvissar umbætur og samræmda stefnu. Einhverjar umbætur taka lengri tíma en aðrar skemmri. Sem bæjarstjóri Kópavogs heimsótti ég alla grunnskóla Kópavogs til að skilja þær áskoranir og þau tækifæri sem grunnskólastigið stendur frammi fyrir. Í þeim heimsóknum átti ég samtöl við nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra og í framhaldinu kynntum við aðgerðir til að tryggja að skólar í Kópavogi verði áfram í fremstu röð. Einn liður í þeim aðgerðum var að samræma símareglur í öllum grunnskólum Kópavogs. Ég heyrði í samtölum mínum ekki síst frá nemendum óskir þess efnis. Nú hefur Kópavogsbær stigið skrefið og allir grunnskólar Kópavogs verða símalausir frá og með febrúar. Ég er almennt ekki hrifin af boðum og bönnum og þess vegna finnst mér svo mikilvægt að þessi ákvörðun sé tekin í samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra auk ungmenna- og menntaráðs. Við leggjum áherslu á að styrkja félagsleg tengsl nemenda en ekki síst einbeitingu í námi – það gerum við með símalausu skóla- og frístundastarfi. Við hlustum á skólasamfélagið og foreldra og erum nú að bregðast við með markvissum og faglegum hætti. Þessi aðgerð er ein fjölmargra aðgerða sem við ætlum að ráðast í til að styrkja enn frekar skólastarfið í Kópavogi. Við setjum framtíð nemenda í fyrsta sæti. Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Símanotkun barna Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Í Kópavogi er öflugt skólastarf og við ætlum að tryggja að svo verði áfram. Skólastarf þarf hins vegar að vera í stöðugri endurskoðun með það að markmiði að efla námsárangur og stuðla að umbótum í námi. Grunnskólastarf á Íslandi stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum sem kalla á markvissar umbætur og samræmda stefnu. Einhverjar umbætur taka lengri tíma en aðrar skemmri. Sem bæjarstjóri Kópavogs heimsótti ég alla grunnskóla Kópavogs til að skilja þær áskoranir og þau tækifæri sem grunnskólastigið stendur frammi fyrir. Í þeim heimsóknum átti ég samtöl við nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra og í framhaldinu kynntum við aðgerðir til að tryggja að skólar í Kópavogi verði áfram í fremstu röð. Einn liður í þeim aðgerðum var að samræma símareglur í öllum grunnskólum Kópavogs. Ég heyrði í samtölum mínum ekki síst frá nemendum óskir þess efnis. Nú hefur Kópavogsbær stigið skrefið og allir grunnskólar Kópavogs verða símalausir frá og með febrúar. Ég er almennt ekki hrifin af boðum og bönnum og þess vegna finnst mér svo mikilvægt að þessi ákvörðun sé tekin í samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra auk ungmenna- og menntaráðs. Við leggjum áherslu á að styrkja félagsleg tengsl nemenda en ekki síst einbeitingu í námi – það gerum við með símalausu skóla- og frístundastarfi. Við hlustum á skólasamfélagið og foreldra og erum nú að bregðast við með markvissum og faglegum hætti. Þessi aðgerð er ein fjölmargra aðgerða sem við ætlum að ráðast í til að styrkja enn frekar skólastarfið í Kópavogi. Við setjum framtíð nemenda í fyrsta sæti. Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs.