Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu Sandra Sigurðardóttir skrifar 4. febrúar 2026 13:00 Ég verð að segja að ég óttast það að umræða um skólamál, eins og hún hljómar stundum úr sal Alþingis, geri ekki það gagn sem henni er ætlað að gera. Ég efast ekki um að þau sem gagnrýna skólakerfið, gera það af góðum hug. Þau vilja að nemendum gangi betur. En margt af því sem haldið er fram um gang mála í skólakerfinu okkar er einfaldlega ekki rétt og slík umræða rífur niður í stað þess að byggja upp. Með þessu er ég ekki að segja að við megum ekki gagnrýna skólakerfið, en við þurfum að vanda okkur. Þjóðfélagsumræðan hér heima og erlendis hefur því miður þróast í þá átt að henni er beinlínis ætlað að vekja ótta, óöryggi og gremju. Trú á því að kerfin okkar virki sem skyldi er t.d. á hröðu undanhaldi meðal unglinga. Þar með talið skólakerfið. Ef áherslur yfirvalda í menntamálum í gegnum tíðina eru skoðaðar sést vel að menntamál eru mjög pólitísk. Ég er sjálf kennari og alin upp af kennurum og ég leyfi mér að halda því fram að margt af því sem stjórnmálin hafa lagt af mörkum til menntakerfisins í gegnum tíðina hefur valdið skaða. Þótt það hafi verið gert í góðri trú. Fjölmörg dæmi vitna um það, bæði frá hægri og vinstri. Dæmin sýna að við verðum að vanda okkur betur. Í því samhengi fagna ég vinnunni sem er í gangi hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, þar sem verið er að þróa matstæki til að styðja við skólastarf og gera nám og kennslu markvissari. En um leið finnst mér umhugsunarefni að niðurstöður prófa verði notaðar til að bera saman einstaka skóla. Án tillits til félagslegra og efnahagslegra þátta, sem í breyttu þjóðfélagi hafa að öllum líkindum enn meiri áhrif en áður. Ég held að við ættum líka að horfast í augu við það að hætta er á að færri nemendur sem þurfa stuðning í námi taki slík próf, ef tilgangurinn er að bera saman einstaka skóla. Erlendar rannsóknir sýna það. Í því sambandi má benda á að þrátt fyrir að lesfimiprófin, sem hafa verið lögð fyrir nemendur grunnskóla undanfarin 10 ár, séu valkvæð hefur þátttaka í þeim verið mjög góð. Í kringum 90%, frá 1.-10.bekk. Þannig eru orðin til dýrmæt, marktæk gögn. Gögn sem við getum notað í uppbyggilegum tilgangi. Við. Mættum svo sannarlega gera meira af því. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra Sigurðardóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar