Verðbólgan kemur aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein – stjórnvöld ráðþrota Vilhelm Jónsson skrifar 5. febrúar 2026 14:18 Tryggð niður á við — vernd upp á við Verðbólgan virðist enn á ný hafa komið forystu verkalýðshreyfingarinnar í opna skjöldu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, lýsti því að nýjustu verðbólguhorfur hefðu slegið hann „kylliflatan“ og jafnvel „nánast steinrotað“. Þessi orðræða er gamalkunnug og orðin fastur liður í ferlinu. Með hverri verðbólguspá fylgja yfirlýsingar um áfall, sorg og svik — settar fram eins og hér sé um ófyrirséðan atburð að ræða, en ekki fyrirsjáanlega niðurstöðu kerfis sem hefur hagað sér með sama hætti árum og áratugum saman. Sama verkalýðshreyfing skrifar þó reglulega undir kjarasamninga sem eru illa varðir, eða alls ekki varðir, gegn verðbólgu. Undrunin beinist því ekki að eigin forsendum samninganna, heldur að því að verðbólgan skuli enn á ný gera nákvæmlega það sem hún hefur alltaf gert. Kaupmáttur brennur upp með reglubundnum hætti, en ábyrgðin er sett annars staðar: á Seðlabankann, á „aðstæður“ eða á ófyrirséða þróun. Aldrei á samningana sjálfa — þótt þeir hafi frá upphafi verið byggðir á von fremur en raunverulegri vernd. Stjórnvöld leggja sitt af mörkum til þessa leikrits. Þau lofa nánast hverju sem er til að koma samningum í gegn. Samningar eru kynntir sem ábyrgir, stöðugir og í þágu almennings. Þegar á reynir reynast þeir hins vegar lítils virði. Seðlabankinn bregst við með áframhaldandi aðhaldi og óbreyttum vöxtum, verkalýðshreyfingin lýsir áfalli — og launafólk situr eftir með samninga sem brenna upp, enn eina ferðina. Mynstrið er orðið fullmótað. Í þessu samhengi er endurskoðunarréttur kjarasamninga kynntur sem varnagli. Sem öryggisnet. Sem trygging fyrir því að launafólk verði ekki skilið eftir varnarlaust ef forsendur bresta. Í reynd er þetta þó einn léttvægasti og innihaldslausasti þáttur íslensks vinnumarkaðskerfis. Réttur sem á að virkjast í september, ríflega tveimur og hálfu ári eftir að kjarasamningar voru undirritaðir, er ekki raunverulegt viðbragð við verðbólgu heldur seinkað formsatriði. Þá er ekki verið að grípa inn í þegar vandinn skapast, heldur einfaldlega að staðfesta eftirá að hann hafi þegar gert það. Merkingarleysið verður enn skýrara þegar skilyrðin eru skoðuð. Endurskoðunarrétturinn snýst í raun aðeins um það hvort verðbólga fari yfir 4,7% við eina tiltekna mælingu. Ekki hvort hún hafi verið langt yfir markmiðum í mánuðum eða árum. Ekki hvort kaupmáttur hafi verið étinn upp. Ekki hvort vextir hafi verið í sögulegum hæðum eða samfélagið staðið á barmi örvæntingar. Allt það telst aukaatriði — nema veruleikinn birtist á réttum degi, í réttri tölu, á réttu eyðublaði. Á sama tíma blasir annað misræmi við. Verkalýðshreyfingin telur sig geta samið um óverðtryggð laun fyrir sitt fólk, á meðan viðsemjendur hennar — stjórnendur, embættismenn og aðrir á ofurlaunum — verja eigin tekjur með verðtryggingu, sjálfvirkum hækkunum, ríflega útfærðum starfslokasamningum og öðrum samningsbundnum verndarákvæðum. Þar hækka laun sjálfkrafa þegar verðbólgan fer úr böndunum, eða tekjur eru tryggðar áfram þótt störfum ljúki. Hér er beðið um ábyrgð, þolinmæði og skilning. Ábyrgðin er sett neðar í tekjustigann, en verndin ofar. Þetta er ekki tilviljun heldur skipulögð áhættufærsla. Launafólk er látið bera verðbólguna, á meðan þeir sem semja við það færa áhættuna frá sér með samningsbundnum varnarúrræðum sem virka í reynd. Í slíku kerfi eru kjarasamningar ekki samningar um kaup og kjör, heldur uppgjör um hver situr eftir með tapið. Við þetta bætist að raunverulegt verðlagseftirlit og aðhald eru nánast engin. Í stað kerfisbreytinga hefur almenningur fengið áratuga yfirlýsingagleði: loforð, tímabundnar aðgerðir og orðræðu sem á að virka sefnandi — en breytir engu. Það hlýtur að vera komið nóg. Það er líka vert að rifja upp að laun voru hér áður verðtryggð, þar til þeirri vísitölutengingu var kippt úr sambandi árið 1983 vegna óðaverðbólgu. Alþingi Íslands sá sér fært að skammta sér verðtryggð ofurlaun árið 2017, á sama tíma og almennt launafólk er beðið um „ábyrgð“ og óverðtryggð kjör í kerfi sem étur kaupmátt með fyrirsjáanlegum hætti. Bankar telja verðtryggingu óhjákvæmilega til að verja útlán sín. Sama gildir um eignir, samninga og tekjur efsta lagsins. Samt er því haldið fram að tekjulægsti hópur samfélagsins — sem má síst við nokkrum skakkaföllum — eigi að bera alla áhættuna. Þetta er ekki hagstjórn. Þetta er val. Þessi tvöfalda mælistika er ekki ný. Viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við ákvörðunum Kjararáðs árið 2017 voru ekki aðeins veik — þau voru afhjúpandi. Á meðan efsta lag stjórnsýslunnar og þingheimur fengu svívirðilegar launahækkanir, var brugðist við með tómlæti í stað aðgerða. Engin raunveruleg mótstaða, engin pólitísk pressa, engin krafa um að tvöfalda mælistikan yrði afnumin. Þetta var augnablik sem kallaði á forystu — en það sem birtist var máttleysi. Í þessu samhengi verður innantómt orðahjal verkalýðsforystunnar sífellt óverjandi. Það er ekki lengur trúverðugt að láta loka sig ítrekað inni í karphúsi í maraþonviðræðum, hálfsvefnvana og illa undirbúin, til að „klára samninga“ sem byggja á loforðum sem löngu eru fullreynd. Stjórnvöld og vinnuveitendur hafa ítrekað sýnt að þau eru tilbúin að lofa nánast hverju sem er til að ná samningum í gegn — án þess að heilindi eða eftirfylgni fylgi í kjölfarið. Afleiðingarnar eru raunverulegar. Tugþúsundir heimila og fyrirtækja hafa misst allt sitt og kljást við langvarandi afleiðingar. Heimili hafa leyst upp, lífsviðurværi horfið og framtíð brostið. Þetta eru ekki náttúruhamfarir. Þetta er afleiðing áratuga svika, ráðaleysis og forystuleysis — bæði hjá stjórnvöldum og verkalýðshreyfingu sem hefur ítrekað brugðist hlutverki sínu. Ábyrgðin liggur þó ekki hjá verkalýðshreyfingunni einni. Hún liggur hjá stjórnvöldum sem móta rammann, setja leikreglurnar og viðhalda kerfi sem byggir á verðbólgu sem tæmir kjarasamninga, verðtryggingu sem bindur fólk í skuldir og sýndarlausnum sem þynna út ábyrgðina. Þetta er ekki ófyrirséð ferli. Þetta er ekki slys. Þetta er sjálfvirk endurtekning. Endurskoðunarrétturinn er ekki til að verja launafólk gegn verðbólgu, heldur til að gera hana pólitískt bærilega. Hann gerir kleift að skrifa undir samninga með hreinni samvisku, vitandi að þegar þeir brenna upp verður hægt að vísa í „réttinn“ — jafnvel þótt forsendurnar hafi frá upphafi verið þannig að samningurinn gat aldrei staðist. Aðgerðaleysið skilur eftir eina óhjákvæmilega spurningu: er forystan starfi sínu vaxin? Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun