Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar 1. júní 2026 15:00 Gervigreindin mun breyta vinnumarkaðnum — en stærsta tækifærið felst ekki í niðurskurði, heldur í vexti. Fyrirtæki sem sjá hana eingöngu sem sparnaðartæki missa af stærri myndinni. Það er mikið talað um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn. Hún á að auka skilvirkni, spara tíma, einfalda ferla og — í sumum tilfellum — leysa ákveðin störf af hólmi. Og já, hún mun gera það. Það væri óraunhæft að halda öðru fram. Tæknin hefur alltaf breytt vinnumarkaðnum. Við hættum að þurfa að hringja í klukkuna til að stilla úrið. Símaskrár hurfu. Internetið umbreytti því hvernig við finnum upplýsingar, eigum samskipti og veitum þjónustu. Sjálfvirknin hefur í áratugi tekið yfir endurtekin verkefni. Gervigreindin er einfaldlega næsta skref í þeirri þróun. En umræðan er oft of þröng. Of mörg fyrirtæki virðast fyrst og fremst horfa á gervigreind sem leið til að fækka starfsfólki, skera niður launakostnað og gera meira með færri höndum. Það getur skilað árangri til skamms tíma, en sem langtímastefna er það takmarkað sjónarhorn. Raunverulegt tækifæri gervigreindar snýst ekki um að gera það sama með færra fólki. Það snýst um að geta gert meira. Fyrirtæki sem nýta gervigreind vel geta þjónustað viðskiptavini hraðar og betur, tekið betri ákvarðanir og þróað nýjar vörur og þjónustu með meiri hraða en áður. Þau geta losað starfsfólk undan verkefnum sem skapa lítið virði og nýtt tímann í það sem skiptir raunverulega máli: samskipti, lausn flókinna vandamála, sköpun, gæði og uppbyggingu trausts. Það verða verðmætin verða til. Þegar fyrirtæki nálgast gervigreind spyrja mörg: „Hvað getum við látið AI gera í staðinn fyrir fólk?“ Sú spurning leiðir nánast óhjákvæmilega til niðurskurðar. Betri spurning er: „Hvað getum við gert meira — eða betur — ef fólkið okkar fær AI sem verkfæri?“ Þetta er ekki bara orðalag. Þetta er gjörólík hugsun. Fyrri spurningin snýst um að minnka. Seinni snýst um að vaxa. Höfundur er sérfræðingur í mannauðsmálum með meistaragráðu í vinnusálfræði og stofnandi VÁ Ráðgjafar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Vinnumarkaður Tækni Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Gervigreindin mun breyta vinnumarkaðnum — en stærsta tækifærið felst ekki í niðurskurði, heldur í vexti. Fyrirtæki sem sjá hana eingöngu sem sparnaðartæki missa af stærri myndinni. Það er mikið talað um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn. Hún á að auka skilvirkni, spara tíma, einfalda ferla og — í sumum tilfellum — leysa ákveðin störf af hólmi. Og já, hún mun gera það. Það væri óraunhæft að halda öðru fram. Tæknin hefur alltaf breytt vinnumarkaðnum. Við hættum að þurfa að hringja í klukkuna til að stilla úrið. Símaskrár hurfu. Internetið umbreytti því hvernig við finnum upplýsingar, eigum samskipti og veitum þjónustu. Sjálfvirknin hefur í áratugi tekið yfir endurtekin verkefni. Gervigreindin er einfaldlega næsta skref í þeirri þróun. En umræðan er oft of þröng. Of mörg fyrirtæki virðast fyrst og fremst horfa á gervigreind sem leið til að fækka starfsfólki, skera niður launakostnað og gera meira með færri höndum. Það getur skilað árangri til skamms tíma, en sem langtímastefna er það takmarkað sjónarhorn. Raunverulegt tækifæri gervigreindar snýst ekki um að gera það sama með færra fólki. Það snýst um að geta gert meira. Fyrirtæki sem nýta gervigreind vel geta þjónustað viðskiptavini hraðar og betur, tekið betri ákvarðanir og þróað nýjar vörur og þjónustu með meiri hraða en áður. Þau geta losað starfsfólk undan verkefnum sem skapa lítið virði og nýtt tímann í það sem skiptir raunverulega máli: samskipti, lausn flókinna vandamála, sköpun, gæði og uppbyggingu trausts. Það verða verðmætin verða til. Þegar fyrirtæki nálgast gervigreind spyrja mörg: „Hvað getum við látið AI gera í staðinn fyrir fólk?“ Sú spurning leiðir nánast óhjákvæmilega til niðurskurðar. Betri spurning er: „Hvað getum við gert meira — eða betur — ef fólkið okkar fær AI sem verkfæri?“ Þetta er ekki bara orðalag. Þetta er gjörólík hugsun. Fyrri spurningin snýst um að minnka. Seinni snýst um að vaxa. Höfundur er sérfræðingur í mannauðsmálum með meistaragráðu í vinnusálfræði og stofnandi VÁ Ráðgjafar.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar