Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 12:15 Finnur Beck var einn af níu sem voru um borð SAS-flugvélarinnar. Samsett/Vilhelm/Aðsend Níu manna hópur frá Íslandi var um borð í flugvél SAS sem hafnaði í grasi utan brautarinnar eftir tilraun til flugtaks. Finnur Geir Beck, framkvæmdastjóri Samorku, var meðal farþega.
Fréttastofa náði tali af Finni er hann sat í flugvél Icelandair, loks á leið heim eftir fyrri vandræði. „Við vorum níu manna hópur sem var að ferðast saman vegna vinnu og vorum að fara fljúga með SAS frá Brussel til Kaupmannahafnar. Það var búið að vera vont veður í Kaupmannahöfn, sem hefði raskað fluginu, svo það var mikil áhersla á að fara hratt af stað,“ segir Finnur. Flugferðin hafi síðan farið heldur eðlilega af stað og vélin komin á töluverðan hraða þegar flugstjórinn nauðhemlar. „Eftir smá tíma byrjar hún að negla niður því hún er augljóslega að hætta við flugtakið. Það er látið reyna á allar bremsur vélarinnar þannig að hún hristist öll og skelfur, og færist aðeins til.“ Á myndbandi sem TV2 hefur undir höndum sést hvar vélin er komin út í kant við brautina. Finnur segir flugstjórann síðan hafa greint frá því að ástæðan fyrir nauðhemluninni var að flugvélin hafi verið á rangri flugbraut. Farþegunum brugðið Finnur segir farþegana hafa haldið ró sinni en þeim hafi samt sem áður brugðið. Margt fari í gegnum hugann þegar flugvélin nauðhemli svo skyndilega. „Maður var feginn þegar þessu var lokið, auðvitað var manni brugðið þegar þetta gerist,“ segir Finnur. Hann hrósar áhöfn flugvélarinnar fyrir skjót viðbrögð og segir þau hafa upplýst farþegana nákvæmlega um hver næstu skref yrðu. Eftir klukkustundar bið í vélinni kom slökkviliðið á vettvang og farþegarnir voru fluttir með rútum í flugstöðina. Líkt og kom fram var Finnur í flugvél Icelandair þegar fréttastofa náði tali af honum og var hópurinn á leiðinni heim til Íslands.
Fréttir af flugi Belgía Íslendingar erlendis Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira