Belgía

Belgía

Höfuðborg: Brussel. Mannfjöldi: 11,7 milljónir (2025). Flatarmál: 30.528 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Tveir látnir í gróðureldum í Grikk­landi

Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Van Bommel tekur við Belgíu

Hollendingurinn Mark van Bommel hefur verið ráðinn sem þjálfari belgíska landsliðsins í fótbolta. Hann kemur í stað Rudi Garcia sem sagði starfi sínu lausu eftir að hafa verið sleginn úr heimsmeistaramótinu í fótbolta í 8-liða úrslitum gegn Spáni.

Fótbolti
Fréttamynd

Ís­lendingarnir næstum lent í stór­slysi vegna al­var­legra mis­taka

Mikil hætta var á ferðum á Brussel-flugvelli í gær þegar flugstjóri ætlaði að hefja þotu SAS til lofts á akbraut í stað þess að fara inn á flugbraut. Flugvélin hafði náð yfir 200 kílómetra hraða á klukkustund þegar henni var nauðhemlað. Farþegar sluppu vel frá atvikinu en þotan nam staðar skammt frá fjölda eldfimra eldsneytistanka.

Erlent
Fréttamynd

Fór í flug­tak af ak­braut og hafnaði úti á grasi

Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar.

Erlent
Fréttamynd

Hætta ó­vænt við tónleikaferðalög sín

Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.

Tónlist
Fréttamynd

ESB frystir rúss­neskar eignir ó­tíma­bundið

Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að beita neyðarheimild sem felst í að ríkiseignir Rússlands innan ESB verði frystar ótímabundið. Á sama tíma hafa rússnesk stjórnvöld hótað að beita verðbréfafyrirtækið Euroclear, vörsluaðila stórs hluta umræddra eigna, hefndaraðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að koma fram við Belga eins og Ung­verja

Ráðamenn í Evrópu hafa varað kollega sína í Belgíu við því að standi þeir áfram í vegi þess að hald verði lagt á frysta sjóði Rússa, sem eru að miklu leyti í belgískum banka, verði mögulega komið fram við þá eins og Ungverja í framtíðinni. Til stendur að reyna að samþykkja aðgerðirnar á leiðtogafundi eftir viku en Bandaríkjamenn hafa einnig reynst Þrándur í götu Evrópumanna.

Erlent
Fréttamynd

Biðla til Belga en tvær til­lögur á borðinu

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er sögð hafa lagt fram tvær tillögur um hvernig Evrópuríkin gætu aðstoðað Úkraínumenn við að fjármagna baráttu sína gegn Rússum næstu tvö árin.

Erlent
Fréttamynd

Leggja fram á­ætlun um haldlagningu frystra sjóða Rússa

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun leggja til að frystar eignir Rússa í Belgíu og öðrum Evrópuríkjum verði notaðar til að fjármagna 165 milljarða evra lán til Úkraínu. Peningarnir yrðu notaðir til að fjármagna ríkisrekstur og varnir Úkraínu á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Þor­gerður mætt en sögu­leg fjar­vera Rubio vekur furðu

Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hittast á fundi í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Athygli hefur vakið að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hyggst ekki mæta á fundinn. Það er sögulega afar sjaldgæft að ráðherra Bandaríkjanna sjái sér ekki fært að mæta þegar ráðamenn NATO-ríkja hittast, en framkvæmdastjóri bandalagsins kveðst sýna fjarveru Rubio fullan skilning.

Erlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi utanríkismálastjóri ESB hand­tekinn

Federica Mogherini, fyrrverandi utanríkismálstjóri Evrópusambandsins, er sögð ein þriggja einstaklinga sem voru handteknir í aðgerðum belgísku lögreglunnar í dag. Húsleit var einnig gerð hjá utanríkisþjónustu sambandsins en aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á meintu misferli í útboði.

Erlent
Fréttamynd

Belgar óttast að þurfa að endur­greiða Rússum

Forsætisráðherra Belgíu segist ekki vilja leggja hald á frysta sjóði Rússa þar í landi. Hann óttast að Rússar muni höfða mál gegn Belgíu og að Belgar muni sitja uppi með skaðabótaskyldu. Þá segir ráðherrann, sem heitir Bart De Wever, að eignaupptakan gæti komið niður á friðarviðleitni varðandi innrás Rússa í Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Belgar kalla saman þjóðar­öryggis­ráð vegna drónaflugs við flug­velli

Þjóðaröryggisráð Belgíu kemur saman til neyðarfundar í dag vegna drónaflugs við flugvelli í landinu sem röskuðu ferðaáætlunum farþega og hefur valdið áhyggjum af öryggismálum. Rússar eru sagðir „mjög líklega“ bera ábyrgð á sífjölgandi atvikum þar sem óvelkomnir drónar hafa verið á sveimi í evrópskri lofthelgi síðan um miðjan september.

Erlent
Fréttamynd

Drónaumferð við her­stöð í Belgíu

Tvö kvöld í röð hafa drónar sést fljúga yfir herstöð í norðurhluta Belgíu. Lögreglan hefur málið til rannsóknar. Fjöldi dróna hefur sést yfir evrópskum flugvöllum síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola

Aðalsvið raftónlistarhátíðarinnar Tomorrowland í Belgíu varð eldi að bráð í dag aðeins tveimur dögum áður en hátíðin átti að hefjast. Hundruð þúsunda manns munu sækja hátíðina heim í bæinn Boom næstu tvær vikur.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta er það sem að mann dreymdi um“

Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu, útilokar það ekki að þjálfa félagslið aftur einhvern daginn. Núna er hún hins vegar á stað sem hana dreymdi um að vera á þegar að hún var yngri og á sínu fyrsta stórmóti sem landsliðsþjálfari.

Fótbolti