„Hápunktur ferilsins“ á opnunarhátíð Ólympíuleikanna Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. febrúar 2026 10:00 Elín Elmarsdóttir Van Pelt var fánaberi Íslands í Cortina. Mattia Ozbot/Getty Images Vetrarólympíuleikarnir í Mílanó og Cortina voru formlega settir með opnunarhátíð í gærkvöldi. Hátíðin var með öðrum hætti en vanalega, en venju samkvæmt átti Ísland flotta fulltrúa þar.
Setningarhátíðin var með breyttu sniði að þessu sinni, enda er þetta í fyrsta sinn sem opinber staðsetning leikanna er í tveimur borgum frekar en einni. Klippa: Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina Borgirnar Mílanó og Cortina héldu sitt hvora opnunarhátíðina í gærkvöld og tendruðu sitt hvoran Ólympíueldinn. Minni hátíðir voru svo haldnar víðsvegar um ítölsku Alpanna. Mikill viðbúnaður var í Mílanó í kringum opnunarhátíðina. Stuðningshópar Ísrael og Palestínu hafa til dæmis tekist á á götum úti en umfangsmesta lögregluaðgerðin í Mílanó tengdist komu JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, sem mætti á svæðið með hvorki meira né minna en þrjú hundruð öryggisverði í fjórtán mismunandi flugvélum. Ísland átti ekki fulltrúa á San Siro leikvanginum í Mílanó en Elín Elmarsdóttir van Pelt, sem keppir fyrir Íslands hönd í alpagreinum, var fánaberi á setningarhátíðinni í Cortina. „Ég er gríðarlega stolt að fá að bera þennan íslenska fána inn á völlinn, það er alveg hápunktur ferilsins, svo sannarlega. Þetta hefur verið draumur alveg síðan ég man eftir mér, að fara á Ólympíuleikana“ sagði Elín. Jón Erik Sigurðsson var fánaberi Íslands í Livignio. Cameron Spencer/Getty Images Hinir þrír íslensku keppendurnir voru svo staddir allt annars staðar, í fjallaþorpinu Livigno. Það eru Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir, sem keppa fyrir Íslands hönd í skíðagöngu, og fánaberinn, alpagreinakappinn Jón Erik Sigurðsson. Fjallað var um opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. Dagur hefur keppni fyrstur Íslendinga á morgun, í 20 kílómetra skiptigöngu sem hefst klukkan hálf tólf. Kristrún stígur svo á stokk á þriðjudag en Jón og Elín hefja keppni næsta fimmtudag og föstudag. Keppnisdagskrá Íslendinga Dagur Benediktsson 8. febrúar – 20 km skiptiganga (10 km klassískt / 10 km frjálst) 10. febrúar – Sprettganga, klassískt 13. febrúar – 10 km frjálst 21. febrúar – 50 km klassískt Kristrún Guðnadóttir 10. febrúar – Sprettganga, klassískt 12. febrúar – 10 km frjálst Jón Erik Sigurðsson 14. febrúar – Stórsvig 16. febrúar – Svig Elín Elmarsdóttir Van Pelt 15. febrúar – Stórsvig 18. febrúar – Svig
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Landsliðin undirbúa sig fyrir HM í beinni Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Hinn fjórtán ára Venni vann í Noregi Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Er hægt að stöðva Víkingana? Serena snýr aftur á tennisvöllinn Sjá meira