Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. febrúar 2026 11:00 Hlédís Maren fer fram fyrir Miðflokkinn í borginni. Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur og fyrrverandi blaðamaður hyggst bjóða sig fram fyrir Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Hún segir Reykjavík frábæra borg en aðkallandi verkefni séu mörg, hugmyndafræðilegar kreddur hafi borið heilbrigða skynsemi ofurliði.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Hlédísar á Vísi. Þar segir hún að undanfarna mánuði hafi hún verið orðuð við framboð Miðflokksins í Reykjavík og segir hún að því ætti það að koma fáum á óvart að hún tilkynni nú um framboð. Miðflokkurinn mælist samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum með tvo borgarfulltrúa inni en flokkurinn hefur undanfarna daga kynnt einn frambjóðanda á dag. Enn hefur ekki verið tilkynnt hver verður oddviti flokksins eða í hvaða sætum frambjóðendur verða. Síðast í morgun var greint frá því að Frosti Logason yrði ekki oddviti. Mörg aðkallandi verkefni „Reykjavík er frábær borg en þó eru aðkallandi verkefni mörg. Helstu atriðin eru húsnæðismál, rekstrarhagræðing, skóla- og leikskólamál og samgöngumál. Rauði þráðurinn í öllum þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir eru hugmyndafræðilegar kreddur sem hafa borið heilbrigða skynsemi ofurliði. Þessu verðum við að vinda ofan af til að endurheimta kerfi sem eiga að þjóna almenningi,“ skrifar Hlédís í grein sinni á Vísi. Þar segir hún meðal annars að menntamálin séu aðkallandi og segist hún vilja endurreisa samræmd próf og tryggja heiðarlegt og sanngjarnt einkunnarkerfi sem foreldrar skilji. Þá segir Hlédís að borgin þurfi að sýna fjárhagslega ráðdeild og forgangsraða lögbundnum verkefnum og láta af gæluverkefnum sem enginn hafi beðið um. Þá segir Hlédís að húsnæðismál séu á oddinum og að tryggja verði aukið framboð. „Þétting byggðar mun aldrei virka ef byggðin er ljót. Við eigum ekki að sætta okkur við niðurdrepandi borgarmynd; minnisvarða alls þess versta sem módernisminn hefur upp á að bjóða. Reykvíkingar eiga skilið fallega og fjölbreytta byggð. Lágreistar byggingar sem hleypa ljósinu inn,“ skrifar Hlédís Maren meðal annars. Hún segir framundan mikilvægar kosningar. „Sem munu skipta sköpum fyrir borgarbúa. Það er til mikils að vinna í borginni og ég býð fram krafta mína í þágu þess mikilvæga verkefnis. Ég hlakka til að taka þátt í öflugu starfi flokksins og móta stefnu hans í borginni.“
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira