„Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 09:01 Björgvin Páll Gústavsson þakkar fyrir stuðninginn ásamt félögum sínum í landsliðinu eftir tapið á móti Króatíu í leiknum um bronsið. Vísir/Vilhelm Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var hársbreidd frá því að verða fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að vinna þrenn verðlaun á stórmótum. Björgvin Páll og félagar í íslenska karlalandsliðinu urðu að sætta sig við fjórða sætið á Evrópumótinu en hann hafði áður unnið silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010.
Björgvin Páll er nú kominn heim og byrjaður að spila með Val í Olís-deildinni. Hann er nú búinn að melta nítjánda stórmótið sitt og skrifaði uppgjörspistil á samfélagsmiðla. „Þegar maður sér EM úr nokkurra daga fjarlægð, gangandi um götur Reykjavíkur og takandi við hamingjuóskum þá þarf ég að koma frá mér EM-uppgjöri. Fyrir mig til að byrja með og kannski fyrir þig kæri lesandi. Mitt nítjánda en líklega mesta krefjandi mót að mörgu leyti, andlega, ekki líkamlega. Rússíbani sem innihélt frábærar frammistöður, dottnir út á miðju móti, síðan enn á lífi, komast í undanúrslit og enda síðan í 4. sæti. Þetta mót hafði upp á allt að bjóða,“ skrifaði Björgvin. „Persónulega hefði ég viljað gera meira gagn“ Björgvin átti ekki gott mót, fékk lítið að spila og varði ekki marga bolta þegar hann fékk tækifærið. Hann átti þó sinn besta leik undir lok mótsins og hjálpaði íslenska liðinu að koma sér aftur inn í bronsleikinn. „Persónulega hefði ég viljað gera meira gagn innan vallar og spila stærra hlutverk en á sama tíma geri ég mér grein fyrir mínu hlutverki í þessu liði, á þessum tímapunkti, og er þakklátur fyrir það. Þrátt fyrir fáar spilaðar mín hefur gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri. Það er eitthvað sem ég elska,“ skrifaði Björgvin. Elskar að leita uppi fólk sem hefur ekki trú á honum „Ég elska að leita uppi fólk sem hefur ekki trú á mér og mínum. Það gefur mér orku og kraft til að halda áfram. Það sem var kannski öðruvísi núna en oft áður var að ég fékk ekki mörg tækifæri til þess að losa um þessa orku eða skila henni í vörðum boltum,“ skrifaði Björgvin. Hann nefnir líka börnin sín sem eru núna orðin eldri og meira með á nótunum. „Það sem situr líka eftir er að börnin mín eru komin á þann aldur að þau sjá þessa hluti sem um mann eru skrifaðir og sagðir. Það er held ég rosalega merkilegur skóli að upplifa slíka hluti. Sú þjáning gerði það til að mynda að verkum að elsta dóttir mín deildi mynd af mér sem á stóð „For my hero I chose my dad“. Eitthvað sem hreyfði mikið við mér,“ skrifaði Björgvin. Pínu svekktur en stoltur „Stórmóti sem ég geng frá pínu svekktur en stoltur og „enn og aftur hef ég eitthvað til að sanna, eins og lögmaður“ eins og einn af mínum uppáhalds listamönnum, Saint Pete, myndi orða það. Takk fyrir allan stuðninginn, gagnrýnina og ástríðuna,“ skrifaði Björgvin eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Björgvin Páll Gústavsson (@bjoggi)
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira