Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 8. febrúar 2026 13:03 Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og frambjóðandi um formannskjör í flokknum í vöfflukaffinu í Árborg í gær. Magnús Hlynur Hreiðarsson Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins hefur verulegar áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks á Íslandi, sem er nú um 10 prósent. Hún hefur líka áhyggjur af því að á sumum leikskólum úti á landi talar enginn starfsmaður íslensku.
Ingibjörg Ísaksen var gestur í vöfflukaffi Framsóknarflokksins í Árborg í gær þar sem hún fór yfir stöðuna í flokknum og landsmálunum. Hún er þingflokksmaður Framsóknarflokksins og er í framboði á móti Lilju Alfreðsdóttur um formannssætið í flokknum en kosning um sætið fer fram á flokksþingi um næstu helgi. Ingibjörg hefur miklar áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks. „Já því bara nýjustu tölur sýna okkur að atvinnuleysi er að komast upp í 5 prósent en atvinnuleysi 16 til 24 ára er í kringum 10 prósent og þetta vekur miklar áhyggjur hjá mér. Ég brenn fyrir málefnum barna og ungmenna og hef haft áhyggjur af þeirra stöðu. Þetta er allt, allt of mikið og þarna þurfum við að bregðast við,” segir Ingibjörg. Fjölmenni sótti fundinn hjá Ingibjörgu, sem býr á Akureyri og er gömul landsliðskona í sundi svo eitthvað sé nefnt.Magnús Hlynur Hreiðarsson Ingibjörg fjallaði líka um stöðu leikskólanna í landinu og sagðist vita af leikskólum þar sem enginn starfsmaður talar íslensku. „Já, mér skilst það á þeim aðilum, sem ég hef verið að tala við innan kerfisins, sem hafa þessa tölfræði. Við sjáum það að fagmenntuðum kennurum bæði í leik- og grunnskólum, þeim er að fækka, stéttin er að eldast og í þessum dreifðu byggðum hreinlega skortir starfsfólk, sem talar íslensku,” segir Ingibjörg. Er það ekki alvarlegt? „Það er alveg mikið áhyggjuefni því við vitum það að tungumálið, íslenskan er lykillinn í samfélaginu”. Vöfflurnar ruku út með rjóma og sultu.Magnús Hlynur Hreiðarsson En er Ingibjörg bjartsýn á að hún verði nýr formaður Framsóknarflokksins eða hvað? „Já, ég er að minnsta kosti að leggja mig fram við það að ná því markmiði. Við skulum sjá til hvað setur, við erum tvær öflugar konur núna í baráttu um þetta sæti. Þetta verður áhugavert um næstu helgi,” segir Ingibjörg. Birgir Þór Gissurarson, nemandi í 6. bekk á Selfossi mætti á fundinn og spurði Ingibjörgu hver stefna hennar og flokksins væri í skólamálum. Ingibjörg svaraði. Flott hjá Birki að þora að spyrja á svona opnum fundi þar, sem salurinn var fullur af fólki.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Framsóknarflokkurinn Leikskólar Innflytjendamál Skóla- og menntamál Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Sjá meira