Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 23:00 Jérémy Jacquet verður ekki með liði sínu á næstunni. Það á eftir að koma betur í ljós hversu alvarleg meiðslin hans eru. Getty/Ramsey Cardy Franski fótboltamaðurinn Jérémy Jacquet meiddist illa í fyrsta leiknum sínum eftir að hann samdi við enska stórliðið Liverpool. Jacquet kemur ekki til Liverpool fyrr en í sumar en hjálpar franska liðinu Rennes ekki mikið á næstunni.
Þessi tvítugi miðvörður lenti illa í seinni hálfleik í 3-1 tapi gegn Lens í frönsku úrvalsdeildinni og virtist vera kvalinn þegar hann fór af velli. Habib Beye, aðalþjálfari Rennes, sagði að Jacquet hefði meiðst alvarlega á öxl. „Hjá Jeremy eru það axlarmeiðsli og hjá Abdelhamid [Ait Boudlal, hinum meidda leikmanni Rennes] eru það vöðvameiðsli,“ sagði Beye í viðtali eftir leik. „Við munum skoða þetta betur en þetta er örugglega nokkuð alvarlegt hjá þeim báðum.“ Liverpool hafði betur í baráttunni við Chelsea um að tryggja sér þennan efnilega miðvörð franska U21-landsliðsins fyrir 55 milljónir punda auk 5 milljóna punda í árangurstengdum greiðslum. Hann kemur til Liverpool 1. júlí en er þegar búinn að gera fimm ára samning með möguleika á eins árs framlengingu. „Mjög ánægjulegt, auðvitað,“ sagði Arne Slot aðalþjálfari Liverpool um samninginn. „Hann er gríðarlega hæfileikaríkur og kannski jafnvel meira en það, en við tölum um hæfileika vegna aldurs hans.“ sagði Slot. „Við vorum ekki þeir einu sem höfðum áhuga á honum. Það er enn eitt stórt hrós til fólksins sem vinnur hörðum höndum að því að semja við leikmenn, því okkur tókst að tryggja okkur svona mikinn hæfileikamann.“ sagði Slot. Liverpool’s new summer signing Jeremy Jacquet has sustained a “serious” shoulder injury, according to Rennes head coach Habib Beye.The 20-year-old fell awkwardly in the second half of a 3-1 defeat to Lens in Ligue 1 and appeared in agony as he left the pitch. pic.twitter.com/W2ZeQesEVE— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 7, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira