Braut blað í sögunni eftir spóluna sem mamma keypti Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 08:41 Aden Durde er nú fyrsti erlendi þjálfarinn til þess að fagna sigri í Super Bowl. Getty/Steph Chambers Hinn 46 ára gamli Breti, Aden Durde, varð í nótt fyrsti þjálfarinn frá landi utan Ameríku til þess að fagna sigri í Super Bowl. Hann stýrir vörninni sem lagði grunninn að afar öruggum sigri Seattle Seahawks gegn New England Patriots.
Sjóhaukarnir enduðu á að vinna með afar miklum mun, 29-13, og var það varnarleikur þeirra sem hlaut mest lof eftir leikinn. Hún felldi felldi leikstjórnanda Patriots sjö sinnum og náði boltanum þrisvar sinnum af honum að auki. Vörnin skoraði einnig síðasta snertimark Sjóhaukanna í leiknum. Durde var þegar orðinn fyrsti útlenski þjálfarinn til að komast í Super Bowl og þó að hann gegni ekki æðstu þjálfarastöðu Sjóhaukanna þá er hann einn nánasti aðstoðarmaður Mike Macdonald. BBC fór yfir feril Durde fyrir leikinn í gær og þar kom fram að hann hefði alist upp ásamt eldri bróður hjá einstæðri móður í norðurhluta Lundúna. Áhuginn á amerískum fótbolta kviknaði svo þegar mamman keypti vídjóspólu um sigurlið Chicago Bears frá árinu 1986. Durde benti svo á þá skemmtilegu staðreynd eftir sigurinn í nótt að aðstoðarþjálfari Sjóhaukanna, Leslie Frazier, hefði verið í liði Bears. "This is an unbelievable moment"London-born Aden Durde became the first overseas coach to win a Super Bowl after playing a huge role in masterminding Seattle Seahawks' 'darkside defence' 🏉 pic.twitter.com/ma5M07L4Ur— Sky Sports News (@SkySportsNews) February 9, 2026 „Þetta sá ég ekki fyrir,“ sagði Durde hlæjandi eftir sigurinn, þegar hann var spurður hvort að hann hefði dreymt um þessa stund þegar hann var barn. „Maður tekur bara hverri stund sem kemur og þetta er ótrúleg stund sem ég ætla að meðtaka í nótt,“ sagði Durde sem var hugsað til fjölskyldu sinnar á sigurstundinni en einnig afar stoltur af leikmönnum sínum sem hefðu sýnt allar sínar bestu hliðar. „Ég er þakklátur fyrir allt sem þeir gera og hafa gert. Við unnum að sama markmiði.“
Ofurskálin NFL Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira