U-beygja í öldrunarþjónustu er ekki lausn Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar 9. febrúar 2026 11:31 Mikil og réttmæt umræða hefur skapast undanfarið um alvarlega stöðu á Landspítalanum. Þar liggja aldraðir einstaklingar inni, ekki vegna þess að þeir þurfi áfram bráðaþjónustu, heldur vegna þess að þeir geta ekki farið heim til sín og bíða því eftir lausu hjúkrunarrými. Afleiðingin er kerfisleg stífla sem bitnar bæði á sjúklingum, starfsfólki og getu spítalans til að sinna sínu hlutverki. Í þeirri stöðu hafa heilbrigðisráðherra og forráðamenn Landspítala velt upp þeirri hugmynd hvort leysa megi vandann með því að tvímenna á herbergjum hjúkrunarheimila. Sú hugmynd er ekki aðeins vanhugsuð heldur felur hún í sér algera U-beygju frá þeirri stefnu sem íslenskt samfélag hefur markvisst fylgt í áratugi. Stefna undanfarinna ára og áratuga hefur verið skýr: að útrýma tvíbýlum á hjúkrunarheimilum og tryggja öldruðum sem flytja þangað sitt eigið einkarými. Það var ekki gert af hentugleika eða munaði, heldur vegna þess að við sem samfélag viðurkenndum að þegar einstaklingur missir heilsu og sjálfstæði að svo miklu leyti að hann þarf að flytja á hjúkrunarheimili, þá eigi hann rétt á því að þar sé heimili hans, hann eigi sitt einkarými – s.s. að hjúkrunarheimili sé ekki stofnun í þröngri merkingu. Einkaherbergið/einkarýmið er ekki smáatriði. Það er grundvallarþáttur í mannlegri reisn, sjálfsákvörðunarrétti og lífsgæðum. Þar geymir fólk eigur sínar, minningar og sjálfsmynd. Þar á það að geta átt frið, tekið á móti gestum, grátið, sofið og lifað síðustu æviárun á eigin forsendum að því marki sem mögulegt er í mikilli nálægð við fagfólk og þjónustu. Að ætla nú að snúa við blaðinu og endurvekja tvíbýli sem „lausn“ er stórt skref aftur á bak – bæði faglega og siðferðilega. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er raunverulegur og alvarlegur. Enginn dregur það í efa. En einmitt þess vegna skiptir máli að greina hann rétt og bregðast við með lausnum sem standast tímans tönn. Að þrengja að réttindum aldraðra til að leysa bráðavanda annars staðar í kerfinu er ekki sjálfbær leið. Það er tilfærsla á vanda, ekki lausn. Það er augljóst að bregðast þarf við bæði til skemmri og lengri tíma. Til skamms tíma þarf að styrkja útskriftargetu Landspítala með markvissari samþættri þjónustu, auknum fjölda heimahjúkrunarrýma, skammtímavistun og millistigsúrræðum sem taka við fólki sem er ekki lengur bráðveikt en ekki heldur tilbúið til að fara heim. Slík úrræði eru þekkt víða erlendis og hafa sýnt sig að draga verulega úr legutíma á sjúkrahúsum og ég held að við þekkjum leiðirnar hérna heima og að mínu mati ætti að vera hægt í góðu samstarfi við fagaðila um allt land, sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki sem eiga og reka hjúkrunarheimili, að stíga skref hratt og örugglega í rétta átt. Til lengri tíma blasir þó við að kerfið sjálft þarfnast endurskipulagningar. Það er löngu tímabært að fara af fullri alvöru að huga að uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir aldraða í meira mæli en nú er sbr. það sem gert hefur verið með sóma í Mörkinni og á Sléttuvegi í Reykjavík svo dæmi séu tekin. Þar gætu einstaklingar búið í sínu eigin íbúðar- eða herbergisrými, með sjálfstæði og einkalíf að leiðarljósi, en haft greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þeir þurfa hverju sinni – hvort sem um er að ræða heimahjúkrun, endurhæfingu, læknisþjónustu eða félagslega þjónustu. Slík nálgun byggir á því að heilsa og færni eldist ekki í stökkum heldur þróast yfir tíma. Með sveigjanlegum búsetu- og þjónustuúrræðum má styðja fólk lengur í sjálfstæðu lífi og koma í veg fyrir að bráðakerfið verði biðstöð fyrir önnur kerfi sem ekki eru nægilega vel fjármögnuð eða skipulögð. Umræða dagsins snýst því ekki aðeins um rúm, herbergi eða fermetra. Hún snýst um það hvernig samfélag við viljum vera. Viljum við mæta öldruðum með skyndilausnum sem ganga gegn þeirri mannréttindahugsun sem við höfum byggt upp, eða viljum við horfast í augu við raunveruleikann og fjárfesta í lausnum sem virða reisn fólks og bæta heildarkerfið? Höfundur er fyrrverandi starfsmaður í öldrunargeiranum til 15 ára og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Bjarki Þorsteinsson Eldri borgarar Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar