Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Aron Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 18:32 Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg, var frábær með íslenska landsliðinu á nýafstöðnu Evrópumóti þar sem að Ísland endaði í fjórða sæti. Vísir/Vilhelm Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.
Þetta kemur fram í frétt sem birtist á vef Alþjóða handknattleikssambandsins fyrr í dag en dregið verður í riðla fyrir HM þann 10.júní síðar á þessu ári. Ísland endaði í fjórða sæti á nýafstöðnu Evrópumóti og tryggði sér þar með sæti á HM næsta árs. Spilað verður í fjögurra liða riðlum á HM og er liðunum 32 sem tryggja sér þátttökurétt á mótinu skipt niður í fjóra, átta liða, styrkleikaflokka fyrir dráttinn þar sem að eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki mynda fjögurra liða riðil. Riðlarnir verða því átta talsins og þar munu efstu þrjú lið hvers riðils fyrir sig tryggja sér sæti í milliriðlum. Við vitum því fyrir víst að við getum ekki mætt þeim liðum í riðlakeppni mótsins sem eru með okkur í efsta styrkleikaflokki. Þau lið eru: Ríkjandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar Danmerkur, Þjóðverjar Alfreðs Gíslasonar, Króatar Dags Sigurðssonar, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland og Argentína. Nítján lið hafa nú þegar tryggt sér sæti á HM en enn eiga þrettán lið til viðbótar eftir að tryggja sér sæti á mótinu. Nú þegar hafa fjórir íslenskir þjálfarar tryggt liðum sínum sæti á mótinu. Auk Snorra Steins (Ísland), Alfreðs Gíslasonar (Þýskaland) og Dags Sigurðssonar (Króatía) hefur landslið Kúveit, sem spilar undir stjórn Arons Kristjánssonar, einnig tryggt sér sæti á HM gegnum Asíumótið.
HM karla í handbolta 2027 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira