Er smá Insta á skólatíma best? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 10. febrúar 2026 07:02 Mikil umræða hefur verið um símanotkun grunnskólabarna víða um heim. Umræðan snýst að einhverji leyti um samfélagsmiðla sem eru hannaðir þannig að flestir verða mjög háðir þeim. Þeir eru í raun hannaðir eins og spilakassar eða veðmálsspil þannig að þau veita verðlaunastöð heilans mikla styrkingu og hafa sumir lýst þeim eins og stafrænu kókaíni. Eins og flestir vita hafa Ástralir bannað samfélagsmiðla fyrir börn undir 16 ára og ýmsir haft skoðanir á því. Til eru kennarar sem telja slíkt bann algjört rugl og segja það lykta af tæknifælni og að við þurfum einfaldlega að kenna börnunum okkar betur á þessa tækni. Það heyrist líka í auglýsingu fyrir Torgið á rúv um þessar mundir. Ég verð að viðurkenna að ég er algjörlega háð samfélagsmiðlum sjálf. Facebook er minn miðill eins og sannri X kynslóðarkonu sæmir. Ég hangi á þessum miðli 2-3 tíma á hverjum kvöldi yfir sjónvarpinu. Stundum stelst ég yfir vinnudaginn ef að nemendur eru að vinna verkefni og ég með tölvuna fyrir framan mig. Ég er sem sagt framahaldsskólakennari. Ég geymi símann minn samt í skáp í fatahenginu og flesta daga kíki ég ekki á hann yfir daginn þar sem ég er upptekin við að kenna. Það er sem betur fer þannig menning í FG að fólk er almennt ekki með símann sinn í hádegismat og yfirleitt skemmtilegar og líflegar samræður þar í gangi. Er ég að fara að kenna nemendum á samfélagsmiðla og að nota þá hóflega? Ég held ekki. Í fyrsta lagi þurfa nemendur enga kennslu á samfélagsmiðla. Þau eru okkur miklu fremri að öllu leyti. Getum við sem foreldrar/kennarar kennt þeim að nota þá hóflega þegar við erum sjálf háð þeim? Við getum auðvitað sagt þeim að nota þá hóflega en við erum flest að sýna algerlega gagnstæða hegðun. Svo nei, það er ekki að fara að leysa vandann. Mjög áhugaverð sálfræðileg rannsókn hefur komið fram þar sem sýnt er að hófleg notkun samfélagsmiðla hefur hærri fylgni við góða líðan hjá skólakrökkum. Þýðir það þá að smá Instagram á milli verkefna og í frímínútum orsaki góða líðan hjá börnunum? Í fyrsta lagi er þetta fylgnirannsókn sem segir ekkert til um orsakatengsl. Það er mjög algengt að félags- og hugvísindafólk (og almenningur) ranglega túlki fylgni sem orsakasamhengi. Gæti verið að börnunum sem fyrir líður betur, eru í betri félagslegum aðstæðum og hafa efni á að æfa írþóttir eða á hljóðfæri hafi ekki eins mikla þörf fyrir að hanga allan daginn á samfélagsmiðlum? Hvort kemur á undan hænan eða eggið? Þeir krakkar sem glíma við geðræn vandkvæði eða þroskaraskanir eru ekki eins félagslega tengd á samfélagsmiðlum og eru yfirleitt með færri vini og fylgjendur. Þau glíma líka oftar við meiri depurð og kvíða. Getur verið að börnunum sem líður verst kunna ekki almennilega að vera vinsæl á samfélagsmiðlum? Auðvitað upplifa þau sig kannski útundan og vildu óska þess að vera með virkari tengsl og fylgjendur á samfélagsmiðlum. En þýðir það að það sé Instagram sems é að búa til vellíðan og lífsgæði fyrir barnið? Auðvitað ekki. Margir kennarar trúa því að það væri gott fyrir líðan, námsárangur og einbeitingu barna væri að halda símanum algerlega utan við kennslustofuna. Fleiri eru sammála og margir foreldrar líka. Nemendur sjálfir í skólum þar sem er símafrí segjast spjalla meira við vini og skólafélaga í frímínútum eftir að símafrí var boðað. Við þurfum þetta fyrir geðheilsu og heilaheilsu barnanna okkar. Því fleiri klukkutíma sem þau eru án “stafræns kókaíns” á dag því betra. Það er engin að fara að banna þeim að kíkja í símann eftir skóla eða eftir æfingu. Þetta þýðir alls ekki að kennarar séu hræddir við tækni. Flestir skólar búa yfir tölvukosti til að vera með fjölbreytt verkefni sem reyna á tækniframfarir. Þetta snýst um löngun til að vernda geðheilsu, námsárangur, heilaheilsu og félagsleg samskipti nemenda. Nei, við þurfum ekki að kenna börnum betur að nota starfrænt kókaín. Þeim er greiði gerður með að halda þeim frá því á skólatíma. Flestir foreldrar vita þetta, því þeir eru sjálfir háðir þessu og eiga í vandræðum með að takmarka notkunina heim. Ég hef reynslu af því sjálf. Persónulega er ég ekki mikil forræðishyggjumanneskja og fylgjandi frelsi einstaklingsins. Hins vegar held ég ekki að það hafi verið vænlegt að kenna fólki að reykja betur innandyra innan um börn og aðra. Nei, stundum er það gott frá lýðheilsulegu sjónarmiði að banna ákveðna hluti við ákveðnar aðstæður. Okkur dettur ekki í hug að leyfa reykingar aftur í bílum, bíóum, vinnustöðum o.s.frv. Ég held að það sama muni gilda um samfélagsmiðla á skólatíma. Við eigum ekki að hlusta á fólk sem er sjálft háð samfélagsmiðlum og telur sér trú um að þetta sé hræðsla við tækni. Því það á ekki við rök að styðjast. Við eigum heldur ekki að leggja allt okkar undir fylgnirannsóknir sem sýna síður en svo hvort kemur á undan hænan eða eggið. Líklegast er að börnum sem líður vel og eru vel félagslega tengd noti samfélagsmiðla hóflega og líði best. Dah?! Höfundur er framhaldsskólakennari og Facebook-fíkill. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Símanotkun barna Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar