Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Brandr 10. febrúar 2026 10:25 „Þetta er viðurkenning sem styrkir fyrirtækin bæði inn á við og út á við og sameinar fólk í kringum sterkt vörumerki," segir Íris Mjöll Gylfadóttir framkvæmdastjóri Brandr. Sterk vörumerki snúast ekki bara um útlit eða auglýsingar heldur eru lykilþáttur í rekstri, menningu og samkeppnishæfni fyrirtækja. Bestu íslensku vörumerkin 2025 fá viðurkenningu í Hörpu 19. febrúar en Brandr, vörumerkjastofa hefur staðið fyrir viðburðinum árlega síðan 2020.
Að sögn Írisar Mjallar Gylfadóttur framkvæmdastjóra Brandr er markmiðið að koma mikilvægi vörumerkja skýrar inn í umræðu stjórnenda og atvinnulífs. Sterk vörumerki eru margfaldari á svo margt gott í rekstri. Þau eiga heima í stjórnarherberginu og eru miklu meira en auglýsing. Þetta er rekstrartæki sem hefur meðal annars áhrif á arðsemi,“ segir Íris. Faglegt ferli og breið þátttaka Valferlið byggir á faglegum grunni og er umfangsmikið. Fimmtíu valnefndarfulltrúar koma að verkefninu ár hvert og endurnýjast hópurinn að stórum hluta milli ára. Þar er að finna fólk úr íslensku atvinnulífi og fræðasamfélagi sem tilnefnir fyrirtæki sem þykja hafa skarað fram úr sem vörumerki. Þrjátíu fyrirtæki eru tilnefnd í ár. Klippa: Þetta einkennir sterkt vörumerki: Tilnefnd fyrirtæki skila inn ítarlegri vörumerkjakynningu og framkvæma jafnframt brandvísitölurannsókn. Þar fá þau 360 gráðu endurgjöf frá viðskiptavinum um stöðu vörumerkisins, meðal annars aðgreiningu, ímynd, skynjun og hversu vel það talar til markhópa sinna. Fyrirtæki sem taka þátt í flokki vörumerkis vinnustaðar fá einnig ítarlega endurgjöf frá starfsfólki um upplifun, stolt og tengingu við vörumerkið. Fjölbreyttir flokkar og aukin áhersla á vinnustaðinn Viðurkenningar eru veittar í fjórum flokkum sem taka annars vegar til einstaklingsmarkaðar og hins vegar fyrirtækjamarkaðar, bæði fyrir fyrirtæki með færri og fleiri en 50 starfsmenn. Þá var í fyrsta sinn í fyrra veitt viðurkenning fyrir vörumerki vinnustaðar, og er nú skipt í tvo stærðarflokka, auk þess sem persónubrand ársins er valinn. „Einn mikilvægasti markhópur hvers fyrirtækis er starfsfólkið,“ segir Íris Mjöll. Rannsóknir sýni sterkt samband milli ánægju starfsfólks, skýrra gilda og sterks vörumerkis. Sterkt vörumerki vinnustaðar getur haft bein áhrif á ráðningar, tryggð og jafnvel launakostnað. Þau kunna að tala til mismunandi markhópa og þekkja sjálfa sig og viðskiptavininn. Íris segir greinilega vakningu meðal íslenskra fyrirtækja um mikilvægi vörumerkja í rekstri og eftirsóknarvert sé að komast á blað hjá Brandr. „Fyrst og fremst er þetta klapp á bakið fyrir vel unnin störf,“ segir Íris. „Þetta er viðurkenning sem styrkir fyrirtækin bæði inn á við og út á við og sameinar fólk í kringum sterkt vörumerki.“ Sterk vörumerki standa frekar af sér mótvind Sterkt vörumerki skapar skýr hughrif og traust til lengri tíma. Það verður ekki til á einni nóttu heldur byggist meðal annars upp með stöðugleika, þekkingu og skýrri framtíðarsýn. Það borgar sig að horfa vörumerki sem lagntíma fjárfestingum ekki einblína á skamma sigra með auglýsingaherferðum. Þegar á móti blæs eða samkeppni harðnar myndast ákveðinn verndarhjúpur utan um sterk vörumerki og þau standa mótvind frekar af sér. Klippa: Hvað einkennir sterk vörumerki? Viðburður í Kaldalóni með takmörkuðum sætum Viðurkenningarhátíðin fer fram 19. Febrúar í Kaldalóni í Hörpu. Þar verða erlend erindi, sófaspjall og fulltrúar úr íslensku atvinnulífi. Alls eru 30 fyrirtæki tilnefnd í ár og hefur aðsókn farið vaxandi með hverju árinu. Sætaframboð er takmarkað og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Brandr.is Klippa: Mikilvægi viðurkenningar á vörumerki Klippa: Á hverju byggir traust til vörumerkis? Klippa: Hvað einkennir sterkt vörumerki?
Auglýsinga- og markaðsmál Vinnumarkaður Vinnustaðamenning Mannauðsmál Mest lesið Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira