Ísland er að tapa hundruðum milljarða – eitrað framkvæmdakerfi lamar allt samfélagið Sigurður Sigurðsson skrifar 10. febrúar 2026 16:32 Vandinn á Íslandi er ekki skortur á hugmyndum. Hann liggur í því að við kunnum ekki að framkvæma stór verkefni án þess að þau fari úr böndunum. Samfélagið borgar kostnaðinn og allt tjónið – bæði í krónum, lífsgæðum og efnahagslegum afleiðingum. Borgarlínan og Nýi Landspítalinn eru nýjustu dæmin og sýna þetta skýrt. Slóðinn af opinberum verkefnum sem hafa farið úr böndunum er langur og tjónið gríðarlegt. Í dag er mögulegt tap og tjón af Borgarlínu og Nýjum Landspítala af stjarnfræðilegri stærðargráðu fyrir Íslenskt samfélag - líklega um 300 til 500 milljarðar samanlagt. Þetta eru ekki einstök mistök – heldur er þetta eitraða kerfi í dag orðinn kerfisbundinn veikleiki í opinberum framkvæmdum. Þetta lamar allt samfélagið í formi tapaðra fjármuna sem heldur uppi verðbólgu, hækkar verðtryggingu og vexti og lamar lífskjör fólksins í landinu. Vandinn er miklu stærri en einstök verkefni Vandinn liggur ekki fyrst og fremst í því hvað við ætlum að gera, heldur hvernig við gerum það. Íslensk framkvæmdamenning í opinberum framkvæmdum - og jafnvel skortur á þekkingu - er orðið baneitrað kerfi þar sem ábyrgð þynnist, kostnaður springur og enginn virðist hafa vald til að stoppa banvænt ferli. Tap opinberra fjármuna verður óstöðvandi. Sama eitraða framkvæmdakerfið, aftur og aftur Borgarlínan og Nýi Landspítalinn sýna sama Íslenska eitraða framkvæmdakerfið með: 1) Óskýrar forsendur í upphafi, 2) Bjartsýnar og rangar kostnaðaráætlanir, 3) Ábyrgð dreifð þar til hún hverfur, 4) Verkefni keyrð áfram þrátt fyrir viðvaranir, 5) Gagnrýni afgreidd sem bull og „neikvæðni“ eða pólitískur ásetningur Þetta er ekki tilviljun. Þetta er kerfi sem umbunar áframhaldi útstreymi fjármuna úr ríkissjóði umfram áætlanir – en umbunar ekki árangri. Nýi Landspítalinn og Borgarlínan – hundruð milljarða framúrkeyrsla Beinn og óbeinn umframkostnaður og tap þessara tveggja verkefna nemur líklega hundruðum milljarða króna. En þetta er ekki bara fjárhagslegt tap. Allt samfélagið tapar líka lífsgæðum: fólk þarf að bíða lengur eftir heilbrigðisþjónustu, missir af tækifærum, og ferðir og umferðatafir lengjast vegna takmarkaðs aðgengis bíla – jafnvel rafbíla sem ætlað er að draga úr mengun. Hvaða gagn er af rafbíl sem kemst ekki leiðar sinnar fyrir þrengslum eða umferðastíflum? Þetta eitraða framkvæmdakerfi hækkar mikið verðbólgu, vexti og verðtryggingu og lamar allt samfélagið: lamar heilbrigðis- og samgöngukerfi, efnahagslífið og daglegt líf fólks. Ósýnilegi skatturinn – hver græðir og hver tapar Vanþróuð framkvæmdamenning Íslendinga birtist í minni lífsgæðum í daglegu lífi fólks: 1) Með lengri biðlistum í heilbrigðiskerfinu, 2) takmörkuðu aðgengi í samgöngum, 3) verðbólgu, vexti og verðtryggingu sem leggst á heimilin, 4) sköttum sem hækka án þess að gæðin fylgi Þessi ósýnilegi skattur gerir almenning fátækari að nauðsynjalausu – en verktaka, hönnuði og ráðgjafa ríkari. Þetta er akkúrat hópurinn sem ráðleggur stjórnvöldum hvernig eigi að standa að opinberum framkvæmdum. Þessi eitraða framkvæmdamenning er orðinn ósýnilegur skattur á alla Íslendinga auk þess sem ríkið getur ekki lengur sinnt lögboðnum verkefnum og skyldum, samanber ástandið á bráðadeildinni. Þjáning ungra fjölskyldna Hundruðir milljarða í tapi vegna eitraðrar framkvæmdamenningar - bara í tveimur verkefnum - eru ekki bara tölur á blaði. Þetta eyðileggur í dag daglegt líf ungra fjölskyldna: 1) Verðbólga, vextir og verðtrygging gera fyrstu húsnæðiskaupin nánast ómöguleg, 2) Fólk sem vill byggja heimili eða stofna fjölskyldu situr fast í kerfi sem leyfir verktökum og ráðgjöfum að græða á kostnað almennings, 3) Íslenskar vetrarhörkur gera það óhjákvæmilegt að fjölskyldur með börn hafi aðgang að eigin bíl, 4) takmarkað aðgengi samgangna gerir álagið og óvissuna með samgöngur nær óbærilegt. Þetta er persónulegt tap fólksins í landinu: tími, fjármál og draumar sem hverfa. Samfélagið missir kúrsinn og jafnvægið þegar ungt fólk getur ekki tekið þátt í uppbyggingu framtíðarinnar – og því verður kerfið sjálfkrafa ólíklegra til að laga sig eðlilega að framtíðinni og eitruð menning, stjórnleysi og ráðaleysi vex í kerfinu. Smitefni í kerfinu Þegar stjórnvöld komast upp með að reka risaverkefni án ábyrgðar, verður það normið, óstjórn og spilling. Spurningin breytist úr: „Hvernig gerum við þetta rétt?“ í „Hvernig keyrum við þetta áfram?“ Þar liggur raunverulega hættan: kerfið sjálft smitar alla þætti samfélagsins og margskonar eitraðar krísur vaða uppi í samfélaginu í samgöngum, heilbrigðiskerfinu og fleira. Lýðræðislegt vandamál Þetta er ekki lengur bara stjórnsýslulegt klúður. Þetta er nú þegar orðið lýðræðislegt vandamál á Íslandi og amk eins og er ekki að sjá breytingar í nánustu framtíð. Stórar ákvarðanir sem eru teknar án skýrrar ábyrgðar og stöðvunarhnapps þegar hætta er á framúrkeyrslu og brotum, tæma lýðræðið af innihaldi – hægt og markvisst. Fólk bara gefst upp á að glíma við svona þvælu. Niðurstaðan Vandinn heitir hvorki Borgarlína né Nýr Landspítali. Vandinn heitir: Eitrað Íslenskt framkvæmdakerfi sem kostar íslenskt samfélag aukalega hundruð milljarða - bara í tveimur verkefnum. Þetta dregur sérstaklega mikið úr lífsgæðum ungs fólks, lamar heilbrigðis- og samgöngukerfið, hækkar verðbólgu, verðtryggingu og vexti – og hindrar ungar fjölskyldur í að byggja ný heimili. Verra getur þetta varla verið. Samfélag sem ræður ekki við eigin framkvæmdir er ekki bara óskilvirkt og berskjaldað heldur grefur viljandi undan afkomumöguleikum fólksins í landinu. Og sú spurning sem kjósendur þurfa að svara fyrir næstu kosningar er einföld: Ætlum við að halda áfram að samþykkja stórar framfarahugmyndir – án þess að krefjast ábyrgðar á framkvæmdinni og með núverandi eitrað framkvæmdakerfi sem viðstöðulaust mjólkar fjármagn úr opinberum sjóðum umfram áætlanir. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun