Samningar sem tryggja 1,8 milljarð króna í íþróttastarf Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 13:29 Janus Daði Smárason er í öflugum hópi Selfyssinga í íslenska handboltalandsliðinu. Ein af átta svæðisstöðvum íþróttahéraðanna á Íslandi, sem stofnaðar voru 2023, er á Selfossi. VÍSIR/VILHELM Inga Sæland, ráðherra íþróttamála, undirritaði í dag fimm samninga sem samtals skila 1.776 milljónum króna í íþróttastarf á Íslandi.
Stærstur hluti upphæðarinnar er vegna styrktarsamnings um afreksíþróttastarf, eða rúmur milljarður króna, en aðrir samningar eru að miklu leyti hugsaðir til þess að jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, sérstaklega þeirra sem búa á landsbyggðinni. Samningarnir eru eftirfarandi: Styrktarsamningur um uppbyggingu afreksíþróttastarfs – 1.035 m.kr. Styrktarsamningur um uppbyggingu svæðisstöðva íþróttahéraða – 52 m.kr. Samningur við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) – 509,4 m.kr. (rekstrarsamningur 177,5 m.kr; stuðningur til reksturs sérsambanda 105 m.kr; Ferðasjóður íþróttafélaga 226,9 m.kr.) Rekstrarsamningur við Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) – 138,9 m.kr. Rekstrarsamningur við Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) – 40,9 m.kr. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að samningur um afreksíþróttir styðji við nýja Afreksmiðstöð Íslands og innleiðingu nýs fyrirkomulags afreksstarfs í íslenskum íþróttum. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, með forkólfum og fulltrúum íþróttahreyfingarinnar í Laugardalnum í dag.Stjórnarráð Íslands Samningur vegna uppbyggingu svæðisstöðvanna átta er talinn mikilvægur til að efla íþróttastarf um allt land. Stöðvunum var komið á koppinn árið 2023 og eiga þær meðal annars að auka framboð íþrótta fyrir börn með fatlanir, erlendan bakgrunn og af tekjulægri heimilum. Ferðasjóður er sömuleiðis hugsaður til að efla íþróttastarf um allt land, þannig að íþróttaiðkun barna sé minna háð búsetu. Framlag til sjóðsins hækkar um 100 milljónir og er 226,9 milljónir króna. Þá voru gerðir nýir rekstarsamningar við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Íþróttasamband fatlaðra.
ÍSÍ Íþróttir barna Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira