„Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 10:50 Mynd úr safni af laxeldi í Patreksfirði þar sem Arctic Fish er meðal annars með starfsemi. Vísir/Einar „Laxaveisla á Íslandi“ segir í fyrirsögn norska viðskiptablaðsins Finansavisen í gær þar sem fjallað er um mikinn vöxt í laxeldisframleiðslu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Íslandi. Framleiðsla fyrirtækisins, sem er í meirihlutaeigu norska fyrirtækisins Mowi, stefni í að vaxa um 78% yfir tveggja ára tímabil.
Í umfjöllun blaðsins er bent á að Arctic Fish, sem rekur fiskeldi á nokkrum stöðum á Vestfjörðum, sé í 51% eigu norska fyrirtækisins Mowi og 34% í eigu Síldarvinnslunnar sem á næststærstan hlut í félaginu. Vísað er í uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2025 þar sem framleiðsla fyrirtækisins nam 4.229 tonnum sem sé aukning um 22% frá sama tímabili árið á undan þegar framleiðslan var 3.456 tonn. Frá vinnslustöð Arctic Fish í Bolungarvík.Vísir/Anton Brink Þá hafi laxaframleiðslan fyrir allt árið 2025 verið 14.791 tonn sem sé nýtt met og 39% meira en árið á undan. Samkvæmt tilkynningu Arctic Fish eru uppi jákvæðar horfur fyrir árið 2026 þar sem fyrirtækið gerir ráð fyrir umtalsverðum vexti. Áætlanir gera ráð fyrir framleiðslu á 17.500 tonnum af laxi árið 2026. Sé horft til fyrsta ársfjórðungs þessa árs er gert ráð fyrir framleiðslu upp á 5600 tonn sem er aukning um 78% sé framleiðslan borin saman við fyrsta ársfjórðung árið 2024. Frammistaðan á fjórða ársfjórðungi 2025 hafi verið vel yfir væntingum og það sjái fram á áframhaldandi jákvæða þróun í byrjun 2026. Þá verði aukin áhersla áfram lögð á að draga úr kostnaði 2026. Tekjur drógust hins vegar nokkuð saman á milli ára samkvæmt tilkynningu um ársfjórðungsuppgjörið, en ástæðan er rakin til lægra verðs á markaði á sláturtíma.
Fiskeldi Mest lesið Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira