Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. febrúar 2026 17:35 Ísland féll niður í C-deild eftir tap í umspili við Kósovó í mars 2025. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images Dregið var í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar 2026 í höfuðstöðvum UEFA í Brussel í dag. Ísland spilar í C-deild og mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Möltu.
Þjóðadeildinni er skipt í fjórar deildir; A, B, C, D, og deildunum er skipt í fjóra riðla. Spilað verður fjóra leiki í langa landsleikjaglugganum í september og október 2026 en hina tvo leikina í styttri landsleikjaglugganum í nóvember 2026. Efsta liðið í B, C, D, deildar riðli fer beint upp um deild en liðið í öðru sæti fer í umspil við lið sem endaði í þriðja sæti í deild fyrir ofan. A-deildin spilar úrslitakeppni til sigurs í mars og júní 2027 en hinar deildirnar spila umspil í mars 2027. Þjóðadeildin er keppni út af fyrir sig og gildir ekki beint til inngöngu á stórmót eins og HM eða EM, en getur nýst sem varaleið í umspil ef illa gengur í undankeppni. Ísland mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Gíbraltar Ísland spilar í riðli C4 og mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Gíbraltar. Riðill C1: Albanía, Finnland, Hvíta-Rússland, San Marínó Riðill C2: Svartfjallaland, Armenía, Kýpur, Lettland eða Gíbraltar Riðill C3: Kasakstan, Slóvakía, Færeyjar, Moldóva Riðill C4: Ísland, Búlgaría, Eistland, Lúxemborg eða Malta Í lok mars mætast Lettland og Gíbraltar annars vegar og Lúxemborg og Malta hins vegar í tveggja leikja einvígum um sæti í C-deildinni. Riðill A1: Frakkland, Ítalía, Belgía, Tyrkland Riðill A2: Þýskaland, Holland, Serbía, Grikkland Riðill A3: Spánn, Króatía, England, Tékkland Riðill A4: Portúgal, Danmörk, Noregur, Wales Riðill B1: Skotland, Sviss, Slóvenía, Norður-Makedónía Riðill B2: Ungverjaland, Úkraína, Georgía, Norður-Írland Riðill B3: Ísrael, Austurríki, Írland, Kósovó Riðill B4: Pólland, Bosnía og Hersegóvína, Rúmenía, Svíþjóð Riðill D1: Gíbraltar/Lettland, Malta/Lúxemborg, Andorra Riðill D2: Litáen, Aserbaísjan, Liechtenstein Fréttin hefur verið uppfærð. Landsliðsþjálfarinn stefnir beint upp í B-deild Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari A karla, var viðstaddur dráttinn og hafði þetta að segja á miðlum KSÍ: „Mér líst bara vel á þetta og hlakka til að takast á við verkefnið. Það voru ýmsar mögulegar útkomur og auðvitað áhugavert að velta því upp hvaða lið við hefðum getað fengið. En þegar allt kemur til alls þá snýst þetta bara um okkar lið og það sem við ætlum að gera í þessari keppni. Við ætlum okkur aftur upp í B-deild, það er ekkert flóknara en það, og það hefði engu breytt hvaða lið við hefðum fengið, markmiðið hefði alltaf verið það sama. Það er að koma fín mynd á prógrammið hjá okkur núna í vor, mars gluggann og svo júní, og við verðum klárir í Þjóðadeildarverkefnið í haust. Núna þarf KSÍ bara að fara að stilla upp miðasölu á þessa leiki og setja í gang, við þurfum að fá sem flesta á völlinn til að styðja við strákana.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira