Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 12:46 Michael O'Neill fær það verkefni í vor að koma Norður-Írum á HM og bjarga Blackburn Rovers frá falli. Getty/Brian Lawless/ Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í Blackburn Rovers eru komnir með nýjan knattspyrnustjóra.
Michael O'Neill, þjálfari norðurírska landsliðsins í fótbolta, er sagður vera að taka við B-deildarliði Blackburn Rovers. O'Neill mun til að byrja með í sameiginlegu starfi til loka tímabilsins. Hann á enn möguleika á að koma norðurírska landsliðinu á HM í sumar. Norður-Írland mætir Ítalíu í undanúrslitum umspils fyrir heimsmeistaramótið í mars og síðan annaðhvort Wales eða Bosníu-Hersegóvínu í úrslitaleik eða vináttuleik, allt eftir úrslitunum í Bergamo. Michael O'Neill is set to be Northern Ireland AND Blackburn Rovers manager at the same time! 😅The Northern Ireland boss is set to take over at Ewood Park initially in a joint role until the end of the season 🤝If a deal with the Irish FA is agreed quickly, O'Neill could be… pic.twitter.com/HzykD0dJ3E— BBC Sport (@BBCSport) February 13, 2026 Búist er við að O'Neill verði með í báðum leikjunum og, ef Norður-Írland kemst áfram gegn öllum líkindum, á heimsmeistaramótinu sjálfu. Norður-Írland stefnir á að komast á sitt fyrsta heimsmeistaramót í fjörutíu ár og sitt fyrsta stórmót síðan O'Neill leiddi þjóð sína í úrslitakeppni EM 2016 á sínu fyrra stjórnartímabili þar, Hinn 56 ára gamli gæti þá tekið við stjórastarfinu hjá Blackburn, sem er í fallsæti B-deildarinnar, til frambúðar. O'Neill fær því það stóra verkefni í vor að koma Norður-Írum á HM og bjarga Blackburn Rovers frá falli. Íslenski landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er markahæsti leikmaður Blackburn í ensku B-deildinni í vetur með sjö mörk. Damien Johnson, fyrrverandi miðjumaður Norður-Írlands, sem hefur verið bráðabirgðastjóri á Ewood Park, er talinn munu starfa við hlið O'Neill hjá Lancashire-liðinu til loka þessa tímabils. Ef samkomulag næst fljótt við írska knattspyrnusambandið gæti O'Neill stýrt liðinu í leiknum gegn Queens Park Rangers á laugardag. O'Neill var viðstaddur drátt Þjóðadeildarinnar á fimmtudag – þar sem Norður-Írland lenti í riðli með Ungverjalandi, Úkraínu og Georgíu – en ræddi ekki við fjölmiðla. Blackburn er í 22. sæti B-deildarinnar, einu sæti frá öruggu sæti á markamun. Liðið hefur verið án stjóra síðan Valerien Ismael lét af störfum 2. febrúar og Johnson tók við sem bráðabirgðastjóri.
Enski boltinn Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira