Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Aron Guðmundsson skrifar 14. febrúar 2026 09:01 Jim Ratcliffe, landeigandi á Íslandi og einn af eigendum Manchester United var harðlega gagnrýndur af fyrrum atvinnu- og landsliðsmanninum Gary Lineker. Vísir/Samsett Enska knattspyrnugoðsögnin Gary Lineker lætur Jim Ratcliffe, einn af eigendum Manchester United heyra það eftir að sá síðarnefndi kvartaði yfir „gríðarlegum fjölda innflytjenda“ sem gert hefðu Bretland að „sinni nýlendu.“
Hinn 73 ára gamli Ratcliffe hefur verið harðlega gagnrýndur eftir viðtal við Sky News þar sem hann kvartaði yfir áhrifum gríðarlegs fjölda innflytjenda í Bretlandi sem „gert hefðu landið að sinni nýlendu“ Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði ummæli Ratcliffe móðgandi og röng, og að hann ætti að biðjast afsökunar. Fjöldi fleiri stjórnmálamanna hefur gagnrýnt Ratcliffe, auk til að mynda félags múslimskra stuðningsmanna Manchester United. Enska knattspyrnugoðsögnin Gary Lineker hefur síðan gagnrýnt Ratcliffe harðlega fyrir hræsni hans. Maður sem kvartar yfir innflytjendum en er sjálfur innflytjandi í skattaparadísinni Mónakó. „Eigendur knattspyrnufélaga eru oftar en ekki milljarðamæringar, fólk sem leitast eftir því að sundra fólki. Það er hræsnin í þessu,“ sagði Gary Lineker í hlaðvarpsþætti sínum Rest is Football. „Hann er sjálfur innflytjandi. Efnahagslegur innflytjandi. Býr í Mónakó. Þú getur kvartað og kveinað eins og þú vilt en borgaðu allavegana skatta hér og leggðu þitt af mörkum til samfélagsins.“ Búið er að benda á það í fjölmiðlum ytra að Ratcliffe hafi farið með fleipur þegar hann fullyrti að íbúum Bretlands hefði fjölgað um 12 milljónir frá árinu 2020. Hið rétta er að þeim fjölgaði úr 66,7 milljónum í 69,4 milljónir, eða um minna en þrjár milljónir. „Margir innflytjendur leggja gríðarlega mikið af mörkum til samfélagsins, tölur um tekjur og skatta sýna það svart á hvítu. Ratcliffe er á sama tíma að reyna eins og hann getur að borga ekki skatta,“ bætti Lineker við en eldræðu hans má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira