„Þeir gera allt til þess að blekkja okkur“ Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 23:16 Pierre Kalulu trúði ekki að hann væri að fá rauða spjaldið en Alessandro Bastoni var hæstánægður. Getty Dómarastjóri hefur fengið sig fullsaddan af leikaraskap í ítölsku A-deildinni í fótbolta og finnur til með dómaranum Federico La Penna sem nú gæti þurft að bíða í mánuð eftir að fá aftur að dæma leik í deildinni.
La Penna lét blekkjast af leikaraskap í stórleik Inter og Juventus í gærkvöld þegar hann rak Pierre Kalulu, leikmann Juventus, af velli með sitt annað gula spjald. Inter vann leikinn 3-2 en þegar Kalulu var rekinn af velli rétt fyrir hálfleik var ekkert hægt að gera til að leiðrétta mistökin, þar sem ekki var um beint rautt spjald að ræða. Ítalskir miðlar segja raunar að fyrra gula spjaldið hafi verið ansi strangt en að hið seinna hafi hreinlega verið kolrangur dómur. Kalulu fékk það spjald fyrir brot á Alessandro Bastoni en í sjónvarpi sást vel að Kalulu snerti hann ekki. Alessandro Bastoni fékk gula spjaldið í gær en fiskaði líka Pierre Kalulu af velliGetty/Mairo Cinquetti Dómarastjóri deildarinnar, Ginaluca Rocchi, segir þetta enn eitt dæmið um það að leikmenn stundi það að blekkja dómara. „Við erum mjög vonsviknir, bæði með ákvörðun La Penna sem var augljóslega röng og með það að ekki megi nota VAR í svona tilvikum,“ sagði Rocchi við ítölsku fréttaveituna Ansa. „La Penna er í öngum sínum og við finnum til með honum en ég verð að tala hreint út: Hann er ekki sá eini sem gerði mistök því þetta atvik í gær var skýrt dæmi um leikaraskap. Nýjasta dæmið í deild þar sem þeir gera allt til þess að blekkja okkur,“ sagði Rocchi. Ítalskir miðlar á borð við La Gazzetta dello Sport og La Repubblica segja að búast megi við því að La Penna fari nú í mánaðarlangt hlé og að um sé að ræða efnilegan dómara sem skorti enn reynslu á hæsta stigi.
Ítalski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Sjá meira