„Við erum heppin að hafa leikmann eins og Trent“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 15:30 Trent Alexander-Arnold fagnar Gonzalo García eftir að hafa lagt upp fyrir hann mark í sigri Real Madrid um helgina. Getty/Helios de la Rubia Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, hrósaði enska landsliðsmanninum Trent Alexander-Arnold og sagði Real Madrid vera „heppið að hafa“ hann eftir að bakvörðurinn átti stórleik og lagði upp mark í 4-1 sigri liðsins á Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad á laugardag.
Sending Alexander-Arnolds inn í teiginn lagði upp mark fyrir Gonzalo García sem kom Madrid yfir eftir fimm mínútna leik á Bernabéu, áður en tvö víti frá Vinícius Júnior og mark frá Federico Valverde tryggðu sigurinn og komu Madrid á topp LaLiga-töflunnar. Enski landsliðsmaðurinn hefur átt erfitt fyrsta tímabil á Spáni, þar sem meiðsli hafa takmarkað spilatíma hans við aðeins 466 mínútur – og tvær stoðsendingar – í LaLiga frá því hann kom frá Liverpool í stórum félagaskiptum síðasta sumar. Kom skemmtilega á óvart „Við munum ekki uppgötva neitt nýtt um Trent,“ sagði Arbeloa við Real Madrid TV. „Það kom skemmtilega á óvart að sjá hvernig hann skilur leikinn, hvernig hann sér svæðin. Þessir hlutir eru mjög mikilvægir fyrir þjálfara, að hafa leikmenn sem skilja hvað við viljum,“ sagði Arbeloa. Arbeloa valdi Alexander-Arnold í hægri bakvörðinn fram yfir Dani Carvajal, eftir að báðir leikmenn náðu heilsu, og Valverde sneri aftur í sína ákjósanlegu stöðu á miðjunni. 🚨🔴 Alvaro Arbeloa has praised Trent Alexander-Arnold’s intelligence and versatility, stating that the defender’s ability to play both wide and inside makes him a unique asset 👀:“I can’t say I’m surprised. He is a very intelligent boy, who understands the game very well and… pic.twitter.com/zOuVibJcpm— Goaldata - Liverpool Zone (@LiverpoolZNE) February 15, 2026 Spænski landsliðsmaðurinn Carvajal kom inn á fyrir Alexander-Arnold eftir glæsilega sextíu mínútna frammistöðu. Mjög gáfaður strákur „Þegar ég vinn með [Alexander-Arnold] finnst mér hann vera mjög gáfaður strákur, sem skilur leikinn mjög vel og áttar sig fljótt á því hvað við viljum frá honum,“ bætti Arbeloa við á blaðamannafundi sínum eftir leik. „Hann er ekki dæmigerður bakvörður sem er alltaf úti á kanti, hann getur líka spilað miðsvæðis. Við viljum að leikmenn geti skipt um stöður. Við erum heppin að hafa leikmann eins og Trent,“ sagði Arbeloa. Arbeloa hrósaði einnig Vinícius Júnior, sem hefur nú skorað í tveimur deildarleikjum í röð í fyrsta sinn síðan í ágúst, en hann var í leikbanni um síðustu helgi. Hefur séð frábæran Vinícius í mánuð „Ég hef séð frábæran Vinícius í mánuð núna, ekki bara í þessum leik,“ sagði Arbeloa. „Hann hefur verið að spila á mjög háu stigi og breytt leikjum. Fyrir mér er hann leikmaður sem er meira en bara tölfræðin, hann hefur getu til að hafa áhrif á leiki,“ sagði Arbeloa. Kylian Mbappé var ónotaður varamaður á laugardag – García kom inn í hans stað – en Arbeloa sagðist telja að stjörnuframherjinn yrði klár í fyrri leik Madrid í umspili Meistaradeildarinnar gegn Benfica á þriðjudag. „Mbappé hefur verið að glíma við óþægindi [í vinstra hné] í nokkurn tíma,“ sagði Arbeloa. „Hann leggur mikið á sig í hvert skipti sem hann fer inn á völlinn. Í dag ákváðum við að taka enga áhættu með leikinn á þriðjudag í huga,“ sagði Arbeloa.
Spænski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira