Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Jakob Bjarnar skrifar 16. febrúar 2026 13:33 Arnar Eggert segir áhyggjuefni ef upptökur úr kennslustundum leki út, ýmsir, ekki síst nemendur, geti verið viðkvæmir fyrir því. En eftir á að hyggja fór ekkert fram í hans kennslustund sem ástæða er að skammast sín fyrir. vísir/vilhelm/aðsend Upptaka úr tíma Arnars Eggerts Thoroddsen, doktors í rokktónlist, úr seminari sem hann heldur um hlaðvörp við Háskóla Íslands, hefur lekið út. Þar heyrist hann segja um hópverkefni sem fjallar um Blökastið: „Á ekki örugglega að taka þessa menn af lífi?“
Nútíminn gerir sér mat úr þessum leka, upptaka sem gerð var í kennslustund við Háskóla Íslands, þar sem sjá má umræðu í áfanga sem fjallar um fjölmiðla, menningu og gagnrýna greiningu á efni í opinberri umræðu. „Í myndbandinu heyrist kennarinn bregðast við þegar hann sér hvaða hlaðvarp nemendurnir eru að fara að fjalla um en það eru þremenningarnir Egill Einarsson, Steindir jr. og Auðunn Blöndal, sem eru með hlaðvarpið Blökastið.“ Frosti Logason er ritstjóri Nútímans. Arnar Eggert segir að þeir hafi rætt saman og allt sé í góðu þeirra á milli, enda félagar frá fornu fari.vísir/vilhelm Vísir óð beint í vélarnar og spurði Arnar Eggert einfaldlega hvort að sú væri virkilega raunin, að Háskóli Íslands sé útungunarstöð fyrir þessa hugmyndafræði sem kölluð hefur verið vók? „Nei,“ segir Arnar Eggert og tekur vel utan um orðið. „Ég get nú ekki tekið undir það. Og síst að þar fari fram áróður af minni hálfu. Þó að ég sé með veggspjald af Karli Marx við náttborðið mitt, þá flyt ég það ekki með mér niður í háskóla.“ Gengur út á að segja eitthvað það sem orkar tvímælis Arnar Eggert segir að sér finnist vont fyrir nemendur ef upptökur úr kennslustundum fari á flot því í kennslustundum fari fram alls konar umræður sem auðvelt sé að rífa úr samhengi. Hann segir að glögglega megi heyra, af tóninum í röddu hans, að þetta sé sagt í galsa. „En þá er það auðvitað fyrirsögnin og ég kveinka mér ekki undan því. En þetta er miklu flatara en fréttin reynir að gera þetta. Við erum bara að tala um another day in the uni,“ segir Arnar Eggert og hlær. Háskólinn hefur áður sætt gagnrýni fyrir að draga hugmyndafræðilega tauma þannig að akademískt frelsi megi undan láta: Nú má ætla að þeir sem einkum láta þetta fara fyrir brjóstið á sér séu einmitt þeir sömu aðilar og vörðu rétt Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors emerítusar til að segja eitt og annað sem stuðar, og er það ekki einmitt hlutverk háskóla? „Jú, jú. Þetta gengur eingöngu út á það. Ég spyr nemendur, mótmælið mér, skoðum þetta út frá öllum hliðum… Síðan kemur eitthvað út úr því. Ég sinni auðvitað faglegri vísindalegri kennslu en ég er líka bara Arnar Eggert. Líka, með mínar skoðanir, galla og mitt hold og blóð.“ Vonlaust að stöðva stafræna leka Arnar Eggert segist hafa farið í að vilja slökkva elda en vandamálið á stafrænni öld sé að þegar það var fundið upp er engin leið að læsa einhverju dóti, þannig lagað; þegar það er komið út, þá er það komið út. „En vandamálið á stafrænni öld er að ef eitthvað fer út þá er það komið út og ekki á mínu valdi að stöðva það. Þegar við fundum upp stafræna dótaríið þá var „game is up“ að passa upp á gögn og þegar átti að læsa einhverju dóti, þannig lagað. Arnar Eggert segir að Blökastið sé stórt og það sé annað hvort að fólk hafi eitthvað um það að segja.aðsend Þessi frétt á Nútímanum er saklaus en fólk er misviðkvæmt fyrir þessu. Það er hægt að skoða þetta frá alls konar hliðum. Í mínum huga er jákvætt að fram fari gagnrýnin kennsla um fjölmiðla í Háskólanum. Við vorum að skoða alls konar hlaðvörp og sitt sýndist hverjum.“ Að sögn Arnars Eggerts á Blökastið á sér sitt fylgisfólk inni í tíma. „Þegar þú ert orðinn svona stór eins og þeir – og þeir eru auðvitað stuðandi líka, þótt það nú væri – þá er nú annað hvort að fólk hafi eitthvað um það að segja. Ef ekki væri farið fram gegn mér: „Arnar Eggert er hálfviti að segja þetta..." ég á bara að vera þakklátur fyrir það.“
Háskólar Skóla- og menntamál Fjölmiðlar Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira