Auður Önnu, Kvenréttindafélagið og barnaníðshringurinn Einar Steingrímsson skrifar 18. febrúar 2026 09:47 Ekkert bendir beinlínis til að Auður Önnu Magnúsdóttir og Kvenréttindafélag Íslands, sem hún er í forystu fyrir, tengist níðingsverkum Jeffrey Epstein, enda virðast Auður og félagið ekki nefnd í þeim skjölum sem birt hafa verið, enn sem komið er. En, ... Það er ekkert "en", þetta er bara stílbragð sem ég lærði af pistli Auðar, fyrir hönd Kvenréttindafélagsins, sem birtist í Vísi í gær, 17. febrúar. Þar nafngreinir hún, eftir inngang um Epstein, nokkra karla sem ekkert hafa til saka unnið svo við getum vitað, nema hvað sumir þeirra viðhöfðu óviðurkvæmileg ummæli um konur, í litlum hópi vina. (Við erum auðvitað sannfærð um að Auður hafi aldrei sagt neitt ljótt um annað fólk í einkasamkvæmum, enda hefur hún sjálf nýlega útskýrt opinberlega hvernig hún er miklu betri manneskja en við hin, eins og lesa má um hér.) Ef beita ætti sams konar hugsunarhætti og Auður gerir (sem ég mæli ekki með) þá mætti segja eftirfarandi um hana og Kvenréttindafélagið: "Tilgangur þessa pistils er ekki að bera Auði og Kvenréttindafélagið saman við barnaníðshring Epsteins, heldur frekar að undirstrika að það er það sama sem liggur til grundvallar í báðum tilfellum: Manneskjufyrirlitning. Hún birtist hjá Epstein í kvenfyrirlitningu og viðurstyggilegri framkomu við konur, en hjá Auði og Kvenréttindafélaginu í froðufellandi karlhatri." Sú spurning verður sífellt áleitnari hversu langt ofstækisfemínistar þurfa að ganga áður en hið opinbera hættir að styrkja svona soralegan áróður og persónuníð af almannafé. Höfundur er áhugamaður um jafnrétti og siðlega samfélagsumræðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Steingrímsson Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Ekkert bendir beinlínis til að Auður Önnu Magnúsdóttir og Kvenréttindafélag Íslands, sem hún er í forystu fyrir, tengist níðingsverkum Jeffrey Epstein, enda virðast Auður og félagið ekki nefnd í þeim skjölum sem birt hafa verið, enn sem komið er. En, ... Það er ekkert "en", þetta er bara stílbragð sem ég lærði af pistli Auðar, fyrir hönd Kvenréttindafélagsins, sem birtist í Vísi í gær, 17. febrúar. Þar nafngreinir hún, eftir inngang um Epstein, nokkra karla sem ekkert hafa til saka unnið svo við getum vitað, nema hvað sumir þeirra viðhöfðu óviðurkvæmileg ummæli um konur, í litlum hópi vina. (Við erum auðvitað sannfærð um að Auður hafi aldrei sagt neitt ljótt um annað fólk í einkasamkvæmum, enda hefur hún sjálf nýlega útskýrt opinberlega hvernig hún er miklu betri manneskja en við hin, eins og lesa má um hér.) Ef beita ætti sams konar hugsunarhætti og Auður gerir (sem ég mæli ekki með) þá mætti segja eftirfarandi um hana og Kvenréttindafélagið: "Tilgangur þessa pistils er ekki að bera Auði og Kvenréttindafélagið saman við barnaníðshring Epsteins, heldur frekar að undirstrika að það er það sama sem liggur til grundvallar í báðum tilfellum: Manneskjufyrirlitning. Hún birtist hjá Epstein í kvenfyrirlitningu og viðurstyggilegri framkomu við konur, en hjá Auði og Kvenréttindafélaginu í froðufellandi karlhatri." Sú spurning verður sífellt áleitnari hversu langt ofstækisfemínistar þurfa að ganga áður en hið opinbera hættir að styrkja svona soralegan áróður og persónuníð af almannafé. Höfundur er áhugamaður um jafnrétti og siðlega samfélagsumræðu.
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar