Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Aron Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2026 10:02 José Mourinho fékk að líta rauða spjaldið í leik gærkvöldsins. Vísir/Getty Knattspyrnusérfræðingurinn Jamie Carragher er allt annað en sáttur með það hvernig José Mourinho, þjálfari Benfica, tæklaði aðstæður eftir leik liðsins við Real Madrid í umspili fyrir sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær þar sem Vinicius Jr., leikmaður Real Madrid, segist hafa orðið fyrir kynþáttaníði.
Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, stendur frammi fyrir ásökunum um rasisma í garð Vinicius Jr. í 0-1 tapi Benfica gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöld. Vinicius segir hann hafa kallað sig apa en Prestianni segir þetta allt saman einn stóran misskilning og Benfica stendur með honum. Á blaðamannafundi eftir leik Benfica og Real Madrid í gær var José Mourinho, þjálfari Benfica, spurður að því hvort hann teldi Vinicius Jr., leikmann Real Madrid, hafa ögrað stuðningsmönnum og leikmönnum Benfica með fagnaðarlátum sínum eftir að hann skoraði eina mark leiksins. „Já ég tel svo vera,“ svaraði Mourinho. Vinicius fagnaði marki sínu með því að hlaupa í átt að öðrum hornfánanum við mark Benfica í seinni hálfleik og fagnaði þar fyrri framan stuðningsmenn portúgalska liðsins og fékk gult spjald fyrir. Þá fór allt í háaloft. Skömmu eftir fagnaðarlæti Vinicius ræddu hann og Mourinho saman á hliðarlínunni. „Ég sagði við hann að þegar þú skorar svona mark þá fagnarðu og labbar til baka að þínum vallarhelmingi. Þegar að hann fór að tala við mig um að hafa orðið fyrir kynþáttaníð sagði ég við hann að merkasti leikmaðurinn í sögu Benfica væri svartur, Eusebio.“ Ódýrt hjá manni eins og Mourinho Knattspyrnusérfræðingurinn Jamie Carragher segir þetta koma úr hörðustu átt frá manni sem ögri og fagni innilega fyrir framan andstæðinga sína líklega oftar en nokkur annar þjálfari í sögu fótboltans. „Allir ættu að fá að fagna eins og þeir vilja, Það eitt verðskuldar ekki að þú verðir fyrir kynþáttaníð,“ sagði Carragher í útsendingu CBS í kringum leik Benfica og Real Madrid í gær. „Það sé skringilegt að svona orðræða komi frá Mourinho. Munið þið ekki eftir honum hlaupa eftir hliðarlínunni á Old Trafford. Ég man svo eftir honum í bikarúrslitaleik Chelsea og Liverpool þar sem Chelsea skoraði mjög seint í leiknum og hann gaf til kynna með handabendingum að stuðningsmenn Liverpool ættu að halda kjafti. Það er svo ódýrt hjá sama manni að gagnrýna fagnaðarlæti Vinicius Jr. eftir mark í gær, risa mark í mikilvægum leik í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur allan rétt á því að fagna með sínum hætti.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Spænski boltinn Portúgalski boltinn Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Sjá meira