Þörf fyrir raunverulegar breytingar í sveitarstjórn GOGG Guðrún Njálsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 10:02 Á yfirstandandi kjörtímabili hefur mótast valdablokk í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sem hefur starfað án virks og raunverulegs minnihluta. Slík staða dregur úr eðlilegu aðhaldi, opnu samtali og þeim skoðanaskiptum sem er forsenda heilbrigðs lýðræðis. Þegar meirihluti ræður ferðinni án gagnrýninnar umræðu veikjast lýðræðislegar stoðir og ákvarðanataka verður síður gagnsæ og aðgengileg íbúum. Á sama tíma hafa margir ótilgreindir íbúar upplifað að áhrif þeirra á ákvarðanatöku hafi verið lítil sem engin, þrátt fyrir að teknar hafi verið ákvarðanir sem haft hafa veruleg áhrif á daglegt líf þeirra, réttindi og hagsmuni. Rödd þessa hóps hefur ekki fengið þann hljómgrunn sem hún á skilið í samfélagi sem byggir á þátttöku, jafnræði og samábyrgð. Þegar íbúar upplifa að ekki sé hlustað á sjónarmið þeirra skapast fjarlægð milli stjórnvalda og samfélagsins sem þau eiga að þjóna. Jafnframt hefur núverandi sveitarstjórn sætt fjölda stjórnsýslukæra vegna vinnubragða sem hafa verið gagnrýnd. Slíkt ástand er ekki einkamál stjórnsýslunnar heldur varðar allt samfélagið. Fjölmargar kærur kalla óhjákvæmilega á spurningar um verklag, gagnsæi og fagmennsku í stjórnun sveitarfélagsins og benda til þess að tilefni sé til endurmats og úrbóta. Traust til stjórnsýslu byggist á vönduðum vinnubrögðum, skýrum ferlum og ábyrgð í ákvarðanatöku. Þessi staða undirstrikar skýra þörf fyrir breytingar. Þörf fyrir aukið gagnsæi, faglegri stjórnsýslu, opnari umræðu og raunverulegt samtal við íbúa. Sveitarstjórn á að starfa í umboði allra íbúa, með fagmennsku, ábyrgð og virðingu að leiðarljósi. Á þessum grunni býður Betri sveit – fyrir okkur öll fram í Grímsnes- og Grafningshreppi. Markmiðið er að efla traust, styrkja lýðræðið og tryggja að allir íbúar, óháð stöðu eða búsetuformi, fái raunverulegt tækifæri til áhrifa og þátttöku í mótun samfélagsins. Raunverulegar breytingar felast ekki í nýjum listabókstaf núverandi valdablokkar, heldur í nýjum vinnubrögðum, opnara samtali og stjórnsýslu sem þjónar íbúum af heilindum. Höfundur er í stuðningshópi Betri sveitar, framboðs í Grímsnes og Grafningshreppi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur mótast valdablokk í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sem hefur starfað án virks og raunverulegs minnihluta. Slík staða dregur úr eðlilegu aðhaldi, opnu samtali og þeim skoðanaskiptum sem er forsenda heilbrigðs lýðræðis. Þegar meirihluti ræður ferðinni án gagnrýninnar umræðu veikjast lýðræðislegar stoðir og ákvarðanataka verður síður gagnsæ og aðgengileg íbúum. Á sama tíma hafa margir ótilgreindir íbúar upplifað að áhrif þeirra á ákvarðanatöku hafi verið lítil sem engin, þrátt fyrir að teknar hafi verið ákvarðanir sem haft hafa veruleg áhrif á daglegt líf þeirra, réttindi og hagsmuni. Rödd þessa hóps hefur ekki fengið þann hljómgrunn sem hún á skilið í samfélagi sem byggir á þátttöku, jafnræði og samábyrgð. Þegar íbúar upplifa að ekki sé hlustað á sjónarmið þeirra skapast fjarlægð milli stjórnvalda og samfélagsins sem þau eiga að þjóna. Jafnframt hefur núverandi sveitarstjórn sætt fjölda stjórnsýslukæra vegna vinnubragða sem hafa verið gagnrýnd. Slíkt ástand er ekki einkamál stjórnsýslunnar heldur varðar allt samfélagið. Fjölmargar kærur kalla óhjákvæmilega á spurningar um verklag, gagnsæi og fagmennsku í stjórnun sveitarfélagsins og benda til þess að tilefni sé til endurmats og úrbóta. Traust til stjórnsýslu byggist á vönduðum vinnubrögðum, skýrum ferlum og ábyrgð í ákvarðanatöku. Þessi staða undirstrikar skýra þörf fyrir breytingar. Þörf fyrir aukið gagnsæi, faglegri stjórnsýslu, opnari umræðu og raunverulegt samtal við íbúa. Sveitarstjórn á að starfa í umboði allra íbúa, með fagmennsku, ábyrgð og virðingu að leiðarljósi. Á þessum grunni býður Betri sveit – fyrir okkur öll fram í Grímsnes- og Grafningshreppi. Markmiðið er að efla traust, styrkja lýðræðið og tryggja að allir íbúar, óháð stöðu eða búsetuformi, fái raunverulegt tækifæri til áhrifa og þátttöku í mótun samfélagsins. Raunverulegar breytingar felast ekki í nýjum listabókstaf núverandi valdablokkar, heldur í nýjum vinnubrögðum, opnara samtali og stjórnsýslu sem þjónar íbúum af heilindum. Höfundur er í stuðningshópi Betri sveitar, framboðs í Grímsnes og Grafningshreppi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar