Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Jakob Bjarnar skrifar 19. febrúar 2026 15:17 Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu sakar Björk Vilhelmsdóttur formann uppstillinganefndar Samfylkingarinnar um að hafa farið með staðlausa stafi; langt sé síðan afráðið hafi verið að hann myndi ekki fá sæti á lista flokksins í borginni. vísir/vilhelm Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir Björk Vilhelmsdóttur, formann uppstillingarnefndar í borginni, hafa farið með ósannindi í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi er nú í viðræðum við önnur framboð í borginni.
Guðmundur segir þessar væringar rétt að byrja, þetta sé eins og slæmur skilnaður og hann hafi frá nógu að segja. „Mér finnst alvarlegt mál að manneskja í mikilvægu trúnaðarhlutverki fyrir Samfylkinguna reyni að blekkja flokksfólk með þeim hætti sem nú er gert. Hér á ég við formann uppstillinganefndar Samfylkingarinnar í Reykjavík sem reynir að endurskrifa söguna í samtali við Vísi í dag. Þar er farið með mikil ósannindi,“ segir Guðmundur Ingi. Segir Björk fara með ósannindi Vísir greindi frá ákvörðun uppstillinganefndar um að honum yrði ekki boðið sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Guðmundur Ingi hafði látið í ljósi þann vilja að hann myndi þiggja 7. sætið. Hann segir að fyrir viku hafi honum verið tjáð að ekki stæði til að bjóða honum sætið. „Nú segir formaður uppstillinganefndar ósatt í Vísi og heldur því fram að þessi ákvörðun hafi ekki verið tekin fyrr en eftir að Rósin sleit samstarfi við fulltrúaráð flokksins í Reykjavík. Þetta er ósatt,“ segir Guðmundur Ingi í færslu á Facebook. Hann segir að Björk hafi látið að því liggja að um sé að ræða nýja ákvörðun en það sé algerlega fjarstæðukennd hugmynd. „Það er ömurlegt fyrir félaga í Samfylkingunni að fulltrúar sem gegna mikilvægum trúnaðarstörfum í flokknum blekki flokksfólk með þessum hætti og auðvitað sárt fyrir mig persónulega að þetta sé gert í þeim tilgangi að sverta mína persónu opinberlega.“ Er að skoða aðra möguleika Guðmundur Ingi segir að hann hafi á árum áður getað sjálfum sér um kennt að neikvæð ímynd birtist af sér í fjölmiðlum en sú sé ekki raunin í dag. „Hér er vegið ómaklega að mér og röng mynd dregin upp af því sem á undan er gengið.“ Guðmundur Ingi segir að tíðinda sé að vænta frá sér og sínum framboðsmálum á næstunni. Stjórn Rósarinnar hittist í gærkvöldi og er að fara að hittast aftur í kvöld. „Við erum að skoða alla möguleika. Það hefur ekki verið leyndarmál að Rósin sleit samstarfi við fulltrúaráðið einmitt til að skoða aðra möguleika. Það hafa aðrir flokkar og framboð sett sig í samband við okkur og það hafa verið viðræður frá því síðustu helgi. Frekar jákvæðar viðræður.“ Erum við þá að tala um Vor til vinstri? „Það er alls konar í stöðunni sem ekki er tímabært að segja á þessu stigi. En vissulega eru viðræður við Vor til vinstri líka í gangi.“ Telur fortíð sína skipta sköpum innan Samfylkingarinnar En hvar liggur eiginlega hundurinn grafinn? Viltu meina að þín fortíð, þinn ferill sem fangi, hafi þarna eitthvað með þetta að gera? „Ég hef átt erfitt uppdráttar, þess vegna er ég í Rósinni, þar var ég velkominn. Ég hef alltaf þurft að leggja margfalt harðar að mér í lífinu og innan Samfylkingarinnar en aðrir og það hefur verið erfitt. Það er auðvelt að segja eitthvað og ég er auðvitað ekkert ánægður með að það sé verið að lýsa mér sem einhverjum undirheimamanni í Samfylkingunni, það er ekki minn stíll, langt því frá.“ Guðmundur Ingi segir að Rósin verði alltaf Samfylkingarfélag. „Við erum bara ekki að taka þátt í þessu sameiginlega framboði með öðrum Reykjavíkurfélögum. Við gerum það sjálf, en hugsanlega með öðrum framboðum. Við vinnum enn að jafnaðarstefnunni en tökum ekki þátt í þessu.“
Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira