Stórsigur hjá Forest en Brann tapaði á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 19:44 Jón Dagur Þorsteinsson sést hér í leiknum í kvöld en hann fékk besta færi Brann í þessum mikilvæga leik. EPA/PAUL S. AMUNDSEN Enska liðið Nottingham Forest er í góðum málum eftir fyrri leik sinn í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar en það gekk verr hjá Íslendingaliðinu Brann.
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann töpuðu 1-0 á heimavelli á móti ítalska félaginu Bologna. Santiago Castro kom Bologna í 1-0 með marki úr þröngu færi strax á níundu mínútu og það urðu lokatölurnar. Ítalarnir voru mjög sáttir með stöðu mála og gerðu vel í að loka á allar tilraunir Brann. Seinni leikurinn er síðan á Ítalíu. Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson voru í byrjunarliði Brann og Jón Dagur fékk mjög gott færi til að jafna leikinn í fyrri hálfleik en hafði ekki heppnina með sér. „Það er mikið í húfi í næsta leik. Við erum engan veginn úr leik, en hefðum gjarnan viljað fá eitthvað annað en tap úr þessum leik,“ sagði Felix Horn Myhre, leikmaður Brann, við Viaplay eftir leikinn. Nottingham Forest vann 3-0 útisigur á tyrkneska félaginu Fenerbahce en enska liðið var 2-0 yfir í hálfleik og komst í 3-0 eftir fimmtíu mínútur. Seinni leikurinn verður svo á City Ground í Nottingham. Murillo, Igor Jesus og Morgan Gibbs-White skoruðu mörk Forest-manna í kvöld sem eru komnir með annan fótinn í sextán liða úrslitin og byrja mjög vel undir stjórn nýja stjórans Vitor Pereira. Crystal Palace kom 1-0 yfir á útivelli á móti bosníska félaginu Zrinjski Mostar í Sambandsdeildinni en varð að sætta sig við 1-1 jafntefli. Ismaila Sarr skoraði mark Palace á 44. mínútu en Karlo Abramovic jafnaði á 55. mínútu. Gísli Gottskálk Þórðarson spilaði seinni hálfleikinn þegar Lech Poznan vann 2-0 útisigur á finnska félaginu KuPS í Sambandsdeildinni. Antoni Kozubal og Taofeek Ismaheel skoruðu mörk pólska liðsins í fyrri hálfleik en liðið vann manni fleiri frá tólftu mínútu. Þeim tókst ekki að bæta við mörkum í seinni hálfleik en eru í mjög góðum málum fyrir seinni leikinn í Póllandi.
Evrópudeild UEFA Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira