„Það væri bara mjög hrokafullt að vera ekki ánægður“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 22:21 Sigursteinn, þjálfari FH, vill sjá sem flesta næsta fimmtudag er liðin mætast aftur. Anton Brink FH valtaði yfir Hauka í 18. umferð Olís-deild karla í kvöld og sendi þar með skýr skilaboð fyrir undanúrslitaleik liðanna í Powerade bikarnum í næstu viku. „
Það væri bara mjög hrokafullt að vera ekki ánægður eftir sigur á Haukum þannig að ég er mjög ánægður með frammistöðu liðsins og heildarbraginn,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir sigur liðsins í kvöld. „Vörnin og markvarslan var mjög góð og hélt svona nánast allan leikinn. Það voru svo mjög langir kaflar þar sem við vorum mjög skynsamir og vel undirbúnir.“ Daníel Freyr Andrésson var frábær í marki FH í leiknum og var hann með 45% markvörslu og 17 varin skot. Jón Þórarinn Þorsteinsson kom svo inn á þegar líða fór undir lok leiksins en honum tókst að verja fimm skot af níu og var þá með 56% vörslu. „Mér fannst frammistaðan hjá báðum mjög góð. Þeir eru báðir mjög góðir markmenn þannig að ég er mjög ánægður að hafa þá í mínu liði.“ FH mætir Haukum aftur í undanúrslitum Powerade bikarsins næstkomandi fimmtudag á Ásvöllum. Sigursteinn segist vera fullur tilhlökkunar og hvetur stuðningsmenn FH til að mæta og styðja við bakið á liðinu. „Við ætlum að njóta kvöldsins og svo erum við að fara í gríðarlega erfiðan leik á móti Haukum aftur næsta fimmtudag í final four. Það er mikil tilhlökkun því ég þykist vita það að það verður stappfullt hérna og ég vil hvetja alla FH-inga til þess að flykkja sér á bak við okkur.“
FH Olís-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Sjá meira