Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. febrúar 2026 09:02 Dagur Sigurðsson hraunaði yfir EHF og Snorri Steinn tekur undir það sem hann sagði á blaðamannafundinum. vísir Snorri Steinn Guðjónsson vissi fyrirfram að Dagur Sigurðsson ætlaði að hjóla í evrópska handboltasambandið á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi EM. Hann beið spenntur eftir ræðunni og er sammála því sem Dagur sagði þar.
Góðvinirnir Snorri og Dagur hafa eldað grátt silfur saman á síðustu stórmótum sem landsliðsþjálfarar Íslands og Króatíu. Króatarnir hafa reynst strákunum okkar afar erfiðir og þrjú af síðustu fjórum töpum Íslands á stórmótum í handbolta hafa verið gegn Króatíu, síðast í bronsleiknum á EM. Snorri segist orðinn býsna þreyttur á því að tapa gegn Króötum Dags, alveg eins og hann var þreyttur á því að tapa alltaf gegn Ungverjum, áður en sú grýla var kvödd í kútinn. Fengu sér rauðvín fyrir undanúrslitin Þeir Snorri og Dagur eru ekki mikið í samskiptum á meðan stórmótum stendur en þjálfararnir eiga þó í ágætis sambandi utan vallar og þekkjast vel. „Ég þekki Dag og hans fjölskyldu mjög vel, bróðir hans [Bjarki Sigurðsson] er einn af mínum bestu vinum. Þannig að ef við hittumst á stórmótum þá bara gerum við það. Við tókum meira að segja rauðvínsglas saman þegar við komumst í undanúrslitin“ sagði Snorri í viðtali við Val Pál Eiríksson. Klippa: Snorri Steinn um ræðu Dags og leikjaálag á stórmótum Dagur sagðist ætla að strauja þá Eftir að það rauðvínsglas var drukkið deildi Dagur áformum sínum fyrir blaðamannafund sem var haldinn daginn eftir með Snorra. Þar hraunaði Dagur yfir skipuleggjendur mótsins, líkti landsliðsmönnum Króatíu við frosinn kjúkling í skyndibitakeðju EHF og sagði að sambandinu væri sama um heilsu leikmanna. „Hann sagði mér bara: Ég er að fara að taka þá og strauja þá sko“ sagði Snorri. „Þannig að ég var bara mjög spenntur fyrir þessum fundi. Það er margt glórulaust á stórmótum í handbolta og hefur alltaf verið, það er það sorglega við þetta. Þetta er ekkert nýtt af nálinni. Leikmenn hafa kvartað og sagt sína skoðun þannig að þetta er bara rétt sem hann sagði, það er ekkert verið að hugsa svakalega mikið um heilsu leikmanna.“ Lítil hvíld kemur niður á gæðunum Snorri benti líka á að þetta mikla álag á leikmenn hefur mikil áhrif á gæði leikjanna. „Þegar þú ert kominn í undanúrslit á stórmóti þá viltu hafa bestu leikmennina heila heilsu. Þú vilt hafa þá ferska, bara upp á að fá alvöru handbolta með sem mestum gæðum. Það væri handboltanum og leikmönnum klárlega í hag.“ HM og EM á fjögurra ára fresti eins og ÓL? Snorri velti því líka fyrir sér hvaða lausna væri hægt að leita og hvort það eigi hreinlega að hætta að hafa stórmót á hverju ári, en skilur að það sé fjárhagslega óhagkvæmt. „Það er alveg góð pæling, að þetta sé bara of oft og að einhverju leiti þá missir þetta þannig sjarmann. Fyrir lykilmenn er þetta nánast bara sjálfsagður hlutur að fara á stórmót, en ef við berum þetta saman við Ólympíuleikana [sem fara fram á fjögurra ára fresti.] Ef þú missir af einum eða tveimur Ólympíuleikana, þá ertu mögulega bara aldrei að fara á Ólympíuleika. Það er sjarmi í því líka. En ég skil alveg að handboltinn þurfi á þessu að halda og það er hundrað prósent peningalegs eðlis að þetta sé svona oft.“ Brot úr viðtalinu við Snorra Stein má sjá í spilaranum að ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira