„Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. febrúar 2026 10:15 Snorri Steinn sér eftir því að hafa ekki spilað Björgvini Páli meira í riðlakeppninni. vísir / vilhelm Björgvin Páll Gústavsson var langt frá því að vera upp á sitt besta á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta, en landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson skrifar það að mörgu leiti á sjálfan sig.
Björgvin átti ekki gott mót, fékk lítið að spila og varði ekki marga bolta þegar hann fékk tækifærið. Hann átti þó sinn besta leik undir lok mótsins og hjálpaði íslenska liðinu að koma sér aftur inn í bronsleikinn, en áhlaup Íslands kom aðeins of seint og Króatía vann bronsið. Björgvin hafði verið gagnrýndur harðlega fram að því og eftir EM skrifaði hann uppgjörspistil þar sem hann sagði gagnrýnina og viðbjóðinn í hans garð aldrei hafa verið meiri. Þá sat sérstaklega í honum að börnin hans hefðu séð þessa hluti sem voru skrifaðir og sagðir. Snorri Steinn tók upp hanskann fyrir Björgvin í viðtali við Val Pál Eiríksson. „Það voru mín mistök að hafa ekki komið Bjögga fyrr og betur inn í mótið. Þá er ég sérstaklega að tala um riðlakeppnina, það situr aðeins í mér, að hann hafi ekki verið meira inn í mótinu þegar við komum í milliriðilinn. Það er á minni könnu“ sagði Snorri. Snorri ræddi einnig sveiflukennda frammistöðu Viktors Gísla Hallgrímssonar, hins markmannsins í íslenska landsliðinu á EM, og sagði það geta útskýrst af ýmsum ástæðum. Brotið úr viðtalinu má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Snorri Steinn um markvörsluna á EM
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira