Björgum latínunni! Böðvar Stefánsson skrifar 22. febrúar 2026 09:03 Menntaskólinn í Reykjavík er skóli sem byggist á gömlum hefðum. Hann getur rakið sögu sína aftur um 970 ár, til gamla Skálholtsskóla. Allan þann tíma hefur Latína verið stór þáttur í kennslunni. MR er um þessar mundir eini framhaldsskólinn á Íslandi sem er með fornmáladeild. Mörgum finnst að það sé eitt af stærstu einkennum skólans. Út af þessu eru það slæmar fréttir að skólayfirvöld hafi ákveðið að á næsta ári verði Latína ekki kennd á fyrsta ári í máladeild. Þetta hljómar kannski sakleysislega en veruleikinn er sá að með þessu er verið að drepa fornmáladeildina í eitt skipti fyrir öll. Til þessa hafa nemar í fornmáladeild lært inngang að Latínu í eitt ár og síðan framhald í tvö ár. Með því að skera fyrsta árið framan af verður aldrei um alvöru fornmáladeild að ræða. Hætt er við því að við í 2009 árgangnum verðum síðasti hópurinn til að vera í fornmáladeild. Að mínu mati er þetta afar ósanngjarnt gagnvart framtíðar nemendum skólans sem hafa kannski mikinn áhuga á fornum tungumálum og menningu. Latína er hvergi töluð í dag (nema í Vatíkaninu) en engu að síður er hún mikilvæg undirstaða í kunnáttu á mörgum nútímamálum t.d. spænsku, frönsku, rúmensku og ítölsku. Latína er einnig lykill að því að skilja fjölda orða og hugtaka í tungumáli okkar. Fjöldi bóka sem samdar voru á Latínu eru mikilvægur hluti af menningu okkar. Samfélag þar sem enginn kann Latínu skilur ekki fortíð sína. Þess vegna þurfa allar kynslóðir að hafa aðgang að Latínunámi. En hvers vegna er þessi ákvörðun tekin? Mig grunar að ástæðan sé peningamál. Með því að fella niður fornmáladeildina, eina fámennustu deild skólans, geta skólastjórnendur sparað smá pening. Það finnst mér vera metnaðarlaus sparnaðaraðgerð þar sem einu mikilvægasta einkenni skólans er hent út í buskann. Vonandi munu gamlir og nýir nemendur MR standa saman um að verja þessa sögulegu braut. Höfundur er nemandi á tungumálabraut MR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Reykjavík Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Menntaskólinn í Reykjavík er skóli sem byggist á gömlum hefðum. Hann getur rakið sögu sína aftur um 970 ár, til gamla Skálholtsskóla. Allan þann tíma hefur Latína verið stór þáttur í kennslunni. MR er um þessar mundir eini framhaldsskólinn á Íslandi sem er með fornmáladeild. Mörgum finnst að það sé eitt af stærstu einkennum skólans. Út af þessu eru það slæmar fréttir að skólayfirvöld hafi ákveðið að á næsta ári verði Latína ekki kennd á fyrsta ári í máladeild. Þetta hljómar kannski sakleysislega en veruleikinn er sá að með þessu er verið að drepa fornmáladeildina í eitt skipti fyrir öll. Til þessa hafa nemar í fornmáladeild lært inngang að Latínu í eitt ár og síðan framhald í tvö ár. Með því að skera fyrsta árið framan af verður aldrei um alvöru fornmáladeild að ræða. Hætt er við því að við í 2009 árgangnum verðum síðasti hópurinn til að vera í fornmáladeild. Að mínu mati er þetta afar ósanngjarnt gagnvart framtíðar nemendum skólans sem hafa kannski mikinn áhuga á fornum tungumálum og menningu. Latína er hvergi töluð í dag (nema í Vatíkaninu) en engu að síður er hún mikilvæg undirstaða í kunnáttu á mörgum nútímamálum t.d. spænsku, frönsku, rúmensku og ítölsku. Latína er einnig lykill að því að skilja fjölda orða og hugtaka í tungumáli okkar. Fjöldi bóka sem samdar voru á Latínu eru mikilvægur hluti af menningu okkar. Samfélag þar sem enginn kann Latínu skilur ekki fortíð sína. Þess vegna þurfa allar kynslóðir að hafa aðgang að Latínunámi. En hvers vegna er þessi ákvörðun tekin? Mig grunar að ástæðan sé peningamál. Með því að fella niður fornmáladeildina, eina fámennustu deild skólans, geta skólastjórnendur sparað smá pening. Það finnst mér vera metnaðarlaus sparnaðaraðgerð þar sem einu mikilvægasta einkenni skólans er hent út í buskann. Vonandi munu gamlir og nýir nemendur MR standa saman um að verja þessa sögulegu braut. Höfundur er nemandi á tungumálabraut MR.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar