Segir að Grindvíkingar verði að passa vel upp á gömlu kallana Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2026 22:31 DeAndre Kane er þriðji elsti leikmaður Bónus deildar karla. Sá næstelsti, Jeremy Pargo, leikur einnig með Grindavík. vísir/diego Sævar Sævarsson segir að Grindvíkingar verði passa vel upp á álagið á tveimur af elstu leikmönnum Bónus deildar karla þegar út í úrslitakeppnina verður komið.
Tveir af þremur elstu leikmenn Bónus deildarinnar leika með Grindavík. Jeremy Pargo verður fertugur 17. mars og DeAndre Kane 37 ára 10. júní. Elsti leikmaður deildarinnar, Igor Maric, leikur með Val. Hann verður 41 árs í júlí. Jón Halldór Eðvaldsson segir að eldri leikmenn geti reynst gulls ígildi. „Maður er búinn að heyra þetta svo rosalega oft með lið sem eru með leikmenn sem eru í eldri kantinum. Hver átti ótrúlega stóran þátt í að Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra? Það var Hlynur Bæringsson, 42 ára,“ sagði Jón Halldór í Bónus Körfuboltakvöldi. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um eldri leikmenn Grindavíkur Sævar Sævarsson segir ekki hægt að bera Hlyn saman við Pargo og Kane. Hlutverk þeirra sé ólíkt. Þvílík vinna „Hlynur var sjöundi eða áttundi leikmaður í Stjörnunni en burðarásar liðsins voru ungir og ferskir leikmenn. Þarna eru burðarásar liðsins í kringum fertugt. Ég talaði mjög mikið við Loga Gunnarsson undir það síðasta á hans ferli og hvernig hann höndlaði það. Þetta er þvílík vinna, dagleg vinna að halda sér í formi. Hvert einasta ár sem bætist við gerir þetta miklu flóknara,“ sagði Sævar. Pargo er kominn aftur til Grindavíkur. Hann lék um tíma í NBA-deildinni vestanhafs.vísir/anton „Þetta verður bara flókið þegar það eru bara tveir dagar milli leikja. Þess vegna er alveg eðlilegt að segja að best væri að þeir komist í gegnum þetta sem hraðast. En það sem ég held að skipti meira máli er að þeir stjórni mínútunum í fyrstu einvígunum. Að þeir séu ekki að spila þeim 35-38 mínútum. Ég veit ekki, eru mörg lið í hópíþróttum sem fara mjög langt með tvo byrjunarliðsmenn í kringum fertugt. Það dró af þeim báðum í fyrra,“ bætti Sævar við en Grindavík tapaði fyrir Stjörnunni í oddaleik í undanúrslitunum á síðasta tímabili. Biðin kannski ekki góð Jón Halldór er efins um að það sé gott fyrir Grindvíkinga að klára einvígi sitt í átta liða úrslitum sem fyrst. „Punkturinn minn var að ég er ekkert viss um að það sé betra að þú vinnir 3-0 í átta liða úrslitunum og bíðir svo,“ sagði Jón Halldór. Grindavík á deildarmeistaratitilinn vísan en liðið er með sex stiga forskot á toppi Bónus deildarinnar þegar fjórum umferðum er ólokið. Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Körfuboltakvöld Tengdar fréttir Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Darryl Morsell hefndi sín á sínum gömlu vinnuveitendum í Keflavík í leik liðsins gegn ÍA í Bónus deildinni í körfubolta á dögunum. Morsell var rekinn frá Keflavík en átti stórleik fyrir ÍA gegn sínu gamla liði. Rætt var um frammistöðu hans í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. 22. febrúar 2026 11:33 Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-95 | Grindvíkingar með níu fingur á deildarmeistaratitlinum Grindvíkingar tóku á móti ÍR-ingum í kvöld í ansi fjörugum og hröðum leik. Heimamenn mættu til leiks án Daniel Mortensen sem snéri sig á ökkla í síðasta leik og var Valur Orri því mættur í byrjunarliðið og þá snéri Ólafur Ólafsson aftur í liðið eftir meiðsli. 19. febrúar 2026 18:32 „Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig“ Grindavík vann fimm stiga seiglusigur á ÍR í kvöld í Bónus-deild karla, 100-95. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigin tvö í leik þar sem bæði lið gerðu ítrekuð áhlaup og munurinn sveiflaðist ótt og títt. 19. febrúar 2026 21:39 Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira
Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Darryl Morsell hefndi sín á sínum gömlu vinnuveitendum í Keflavík í leik liðsins gegn ÍA í Bónus deildinni í körfubolta á dögunum. Morsell var rekinn frá Keflavík en átti stórleik fyrir ÍA gegn sínu gamla liði. Rætt var um frammistöðu hans í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. 22. febrúar 2026 11:33
Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-95 | Grindvíkingar með níu fingur á deildarmeistaratitlinum Grindvíkingar tóku á móti ÍR-ingum í kvöld í ansi fjörugum og hröðum leik. Heimamenn mættu til leiks án Daniel Mortensen sem snéri sig á ökkla í síðasta leik og var Valur Orri því mættur í byrjunarliðið og þá snéri Ólafur Ólafsson aftur í liðið eftir meiðsli. 19. febrúar 2026 18:32
„Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig“ Grindavík vann fimm stiga seiglusigur á ÍR í kvöld í Bónus-deild karla, 100-95. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigin tvö í leik þar sem bæði lið gerðu ítrekuð áhlaup og munurinn sveiflaðist ótt og títt. 19. febrúar 2026 21:39