Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Eiður Þór Árnason og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 24. febrúar 2026 00:17 Sigurbjörn Bárðarson var lengi landsliðsþjálfari í hestaíþróttum. Hann hafði áhyggjur af samskiptum Margrétar við foreldra sína. vísir/ívar Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína.
Rætt er við Sigurbjörn og Margréti í nýjum þáttum Rásar 1 um sakamálið og var fjallað um þá í Kastljósi. Margrét var í desember dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að bana föður sínum og beita móður sína stórfelldri líkamsárás. Hún situr nú í fangelsi en hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar. Sigurbjörn bar vitni í dómssal en hann lýsir því í þáttunum að hann hafi ítrekað séð foreldrana vinna erfiðisverk fyrir Margréti í hesthúsinu á meðan hún stóð afskiptalaus hjá. Meðal annars hafi þau borið þunga hluti og séð um hestinn þrátt fyrir að Margrét væri sú eina sem væri á hestum. Þegar hann hafi sagt eitthvað við foreldrana hafi þeir sagst vera vanir þessu og hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Ákvað að láta í sér heyra Á einum tímapunkti hafi móðir Margrétar verið á fjórum fótum á gólfinu að setja hlífar á hestinn og faðirinn að setja hnakkinn á. Á meðan hafi Margrét staðið aðgerðalaus hjá. „„Heyrðu, af hverju gerir þú þetta ekki?“ segi ég við dótturina. „Af hverju ertu að láta mömmu þína gera þetta hérna? Svo að láta pabba þinn setja hnakkinn á?“ Hún svarar engu og ég segi: „Þetta er nú orðin bara einhver þvæla, þú átt bara að skammast þín að láta þau vera að gera þetta“,“ rifjar Sigurbjörn upp. Margrét hafi þá spurt Sigurbjörn hvort hann væri að gefa í skyn að hún væri vond við foreldra sína. Hann hafi svarað því játandi. „Þá segir stelpan við mig: „Þú ert ljótur maður. Þú ert vondur maður og ljótur maður.“ Ég svara: „Já, það getur vel verið,“ segi ég. „Þú ert ekki falleg manneskja heldur hvernig þú kemur fram við foreldra þína.“ Ég hefði auðvitað ekkert átt að vera að munnhöggvast við hana en ég svaraði henni. Þá rýkur hún í burtu,“ er haft eftir Sigurbirni í fyrsta þættinum af Vítahring Margrétar Löf. Síðar hafi Margrét sagt honum að hann hafi grætt hana. Á sama tíma reyndu foreldrarnir að telja honum trú um að staðan væri ekki eins slæm og hún liti út fyrir að vera. Skipað þeim fyrir Í áðurnefndum þáttum Þóru Tómasdóttur, frétta- og útvarpskonu, segir að á þessum tíma hafi foreldrarnir lýst því fyrir félags- og fjölskylduráðgjöfum að frá því í maí 2024 hafi Margrét verið brjáluð í skapi. „Hún hafi skipað þeim óspart fyrir, heimtað óskoraðan fjárstuðning og látið þau aðstoða við umönnun hesta hennar, jafnvel að næturlagi. Stundum færi hún í sturlunarástand sem hún bæði svo þau um að hjálpa henni út úr. Sálfræðingur sem Margrét var hjá á þessum tíma greindi hana með persónuleikaeinkenni óstöðugra geðbrigða,“ segir í fyrsta þættinum af Vítahring Margrétar Löf. Hafi barið móður sína í bílnum Einn daginn þegar Sigurbjörn var á leið frá hesthúsinu sá hann Margréti nálgast móður sína sem sat í bíl. Hann sá að eitthvað var ekki í lagi, rauk að bílnum og bankaði á gluggann. Móðir Margrétar hafi þá rennt rúðunni niður til hálfs. „Þá var húfan á henni gengin öll út á hlið. Þá var hún að berja hana þarna undir stýri. Þá bara gengu hnefarnir á hana þarna undir stýri. Ég horfði á arminn á henni koma yfir, fara, koma yfir, fara og koma yfir, fara,“ segir Sigurbjörn. Þá hafi móðirin sagt honum að hafa engar áhyggjur og þetta væri allt í lagi.
Manndráp í Súlunesi Dómsmál Garðabær Hestar Lögreglumál Tengdar fréttir Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Margrét Halla Hansdóttir Löf hefur verið dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað föður sínum og gert tilraun til að bana móður sinni á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl síðastliðnum. 16. desember 2025 15:30 Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira
Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Margrét Halla Hansdóttir Löf hefur verið dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað föður sínum og gert tilraun til að bana móður sinni á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl síðastliðnum. 16. desember 2025 15:30