Sögðust vera keppendur frá landi sem er ekki til Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. febrúar 2026 11:02 Falskir fulltrúar Mandostan hittu Jurgen Klopp í einu partýinu. instagram / @mandostanolympicteam Tveir ungir Ítalir smygluðu sér inn í lokað partý á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina með því að segjast vera keppendur frá Mandostan, landi sem er ekki til.
Federico Corsetti og Giancarlo Folonari eru nítján ára gamlir vinir sem störfuðu sem sjálfboðaliðar á leikunum. Með lævísni tókst þeim að lauma sér inn á alls konar staði sem þeir höfðu ekki aðgang að. Félagarnir létu útbúa fatnað, borða og nælur með gulum fána þykjustulandsins Mandostan. Þannig komust þeir inn á lokaðar samkomur, þar sem þeir hittu raunverulega keppendur en einnig frægðarfólk eins og Jurgen Klopp og Boris Becker. Þeir stofnuðu líka opinberan Instagram reikning fyrir Ólympíulið Mandostan þar sem þeir birtu myndir af sér úr lokuðum samkomum. View this post on Instagram „Frændi minn gerði það sama í Tórínó árið 2006 og okkur dreymdi að gera þetta. Við ólumst upp við þessa sögu og vildum leika hana eftir,“ sagði Federico við sænska miðilinn Expressen. „Þetta var súrrealískt. Að standa og tala við Jurgen Klopp, sem sagðist aldrei hafa hitt neinn frá Mandostan. Hann trúði því að við hefðum verið að keppa á skíðum fyrr um daginn,“ bætti Federico við. Handteknir og yfirheyrðir sem hryðjuverkamenn Á endanum voru þeir þó gómaðir og handteknir. Fólk sem var vel að sér í landafræði kannaðist ekki við fánann og hélt að þeir væru fulltrúar hryðjuverkasamtaka. „Það var ekki jafn gaman. Við þurftum að sitja í yfirheyrslum og eitthvað svoleiðis. Við vorum reknir út úr partýinu og okkur var bannað að starfa sem sjálfboðaliðar eftir það.“ Þeir segja þetta þó ekki eingöngu til gamans gert. Heldur hafi þeir verið að senda táknræn skilaboð. „Það eru svo margar örþjóðir í heiminum sem fá ekki að keppa á Ólympíuleikum. Mandostan er fulltrúi þeirra, jafnvel þó það sé ekki til.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Sjá meira