Rússneskur hermaður sem særðist í stríðinu gæti keppt á Ólympíumótinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. febrúar 2026 13:32 Ivan Shiryayev missti annan fótinn í innrás Rússlands en gæti keppt fyrir hönd sinnar þjóðar á Ólympíumóti fatlaðra. Fjöldi hermanna hefur fallið og enn fleiri hafa slasast á þeim fjórum árum sem nú eru liðin frá innrás Rússlands í Úkraínu. Um fimm hundruð þeirra Rússa sem særðust æfa nú íþróttir og stefna sumir á að keppa fyrir hönd Rússlands á Ólympíumótum fatlaðra.
Rússar kepptu undir hlutlausum merkjum á nýafstöðnum Vetrarólympíuleikum en í síðustu viku var þeim hleypt inn á Vetrarólympíumót fatlaðra í formi sex boðsmiða. Vetrarólympíumótið hefst þann 6. mars næstkomandi og þar verður rússneskum fána formlega flaggað á stórum alþjóðlegum íþróttaviðburði síðan innrásin hófst. Íþróttamálaráðherra Rússlands sagði í nýársávarpi sínu að rúmlega fimm hundruð æfðu nú íþróttir fyrir fatlaða og um þrjátíu þeirra væru hluti af landsliðum. Úkraínski ríkismiðillinn Suspilne skoðaði því Ólympíuhóp Rússlands gaumgæfilega og greinir frá því að á Ólympíulistanum megi finna fyrrum hermann. Snjóbrettakappinn og fyrrum hermaðurinn Ivan Shiryayev er sagður fara á mótið sem varamaður fyrir Sergei Sinyakin, Dmitry Fadeev og Philippe Shebbo Monzer. Hinir þrír síðastnefndu snjóbrettamennirnir séu ekki fyrrum hermenn. Ivan Shiryayev vann til verðlauna á snjóbrettamóti í Rússlandi síðla árs 2025. Shiryayev sagði frá því í viðtali við rússneska áróðursmiðilinn SPBD að hann hefði byrjað að æfa snjóbretti eftir að hafa særst í stríðinu. Áður var hann vélaverkfræðingur sem vann í gosdrykkjaverksmiðju en í átökum í Bakhmut í Donetsk-héraðinu árið 2023 missti hann fótinn. Úkraínski sleðakappinn Vladyslav Heraskevych, sem öðlaðist heimsfrægð þegar hann var dæmdur úr keppni á Vetrarólympíuleikunum fyrir að heiðra minningu íþróttafólks sem hefur fallið frá í stríðinu, brást við tíðindum í ítarlegu viðtali við Guardian. „Við erum að horfa upp á stöðu þar sem fyrrum hermenn gætu keppt á mótinu á Ítalíu undir eigin fána. Þeir voru raunverulega að drepa Úkraínumenn á víglínunum og núna munu þeir drepa þá sem áróðurstæki,“ sagði Heraskevych og hvatti íþróttasamfélagið á alþjóðavísu til að sniðganga leikana. Heraskevych sagði einnig frá því að hann hefði aldrei viljað verða heimsfrægur. Hann hafi einungis viljað heiðra minningu kollega sinna. Milljónirnar sem hann fékk í sárabætur muni fara í góðgerðarsamtök. Úkraínski ríkismiðillinn Suspilne greinir einnig frá því að fleiri fyrrum hermenn gætu keppt fyrir hönd Rússlands á Ólympíumóti fatlaðra sumarið 2028 í Los Angeles. Meðal þeirra sem munu gera tilraun til að komast á Ólympíumótið 2028 séu að minnsta kosti átta fyrrum hermenn.
Ólympíumót fatlaðra Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira