„Ákváðum að velja sterkasta liðið óháð aldri“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. febrúar 2026 14:32 Arnar Gunnlaugsson vonast eftir góðri frammistöðu úrvalsliðs Bestu deildarinnar í Mexíkó. Getty/Ramsey Cardy Arnar Gunnlaugsson vonast eftir að fulltrúar Bestu deildar karla sýni sínar bestu hliðar er Ísland mætir Mexíkó í æfingaleik í nótt. Ytri aðstæður hafa verið settar til hliðar og öll einbeiting á leikinn sjálfan.
Mikið hefur verið rætt og ritað um aðstæður í Mexíkó í aðdraganda leiksins og mikil öryggisgæsla fylgir íslenska liðinu. Sömuleiðis verður hún mikil í kringum leikinn sem mun fara fram. „Ég held það sé fínt að einblína á fótboltann til að dreifa huganum. Það er uppselt á völlinn og ég held að menn séu spenntir fyrir þessu. Þetta er öðruvísi en menn eru vanir, að hafa 35 þúsund tryllta Mexíkóa í stúkunni,“ segir Arnar um verkefnið. Borið hefur á gagnrýni á liðsval Arnars í leikmannahópinn. Í honum séu leikmenn sem eigi lítinn séns á að taka skrefið upp í A-landsliðið og tækifæri hafi verið til að gefa yngri mönnum tækifæri. Meðalaldur hópsins er tæplega 29 ár og átta leikmenn 31 árs eða eldri. Arnar segist hafa ákveðið að velja bestu leikmenn Bestu deildarinnar óháð aldri. „Ég skil það mjög vel og ég virði allar góðar skoðanir. Við litum á þetta þannig að við séum fulltrúar Bestu deildarinnar og við ákváðum að velja sterkasta liðið óháð aldri. Við stöndum bara og föllum með því en svo fylgja hverjum einasta glugga alltaf spurningar um hvort Jón eða Siggi eru valdir,“ segir Arnar. En hverju vonast Arnar eftir því að fá út úr þessu verkefni? „Við sýndum góða frammistöðu oft á síðasta ári en úrslitin voru mikil vonbrigði. Við töpuðum alltof mörgum leikjum. Markmiðið þetta árið er að ná í úrslit en halda í sömu frammistöðu og í fyrra,“ „Leikmyndin verður örugglega svipuð og á móti Frökkum. Við erum að spila við lið sem er ofarlega á heimslistanum á erfiðum útivelli. Þeir eru með marga leikmenn sem munu spila á HM í sumar. Við erum ekki í einhverjum draumóraheimi að við munum stýra leiknum. Þegar augnablikin koma náum við vonandi góðri pressu eða góðum spilkafla eins og var á móti Frökkum. Það er leikmyndin sem við sjáum fyrir okkur,“ segir Arnar. Leikurinn hefst klukkan 2:00 í nótt og er sýndur beint, og í opinni dagskrá, á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Mexíkó Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira