Af hverju frestum við alltaf framtalinu? Tina Paic skrifar 25. febrúar 2026 11:30 Á hverju ári lætur sama tilfinningin á sér kræla þegar Skatturinn opnar fyrir framtalsskil. Smá andvarp, smá hik og sú kunnuglega hugsun að þetta megi bíða til morguns, sem verður áður en varir að næstu viku, á meðan hugurinn leitar strax að því hvort viðbótarfrestur sé enn í boði. Þessi tilfinning er afar algeng. Margir óttast að hafa gleymt einhverju, gert mistök eða að bráðabirgðaútreikningurinn sýni niðurstöðu sem þeir voru ekki alveg tilbúnir að horfast í augu við. Í langflestum tilfellum reynist þessi kvíði þó óþarfur. Það er eiginlega merkilegt, því framtalið er sjaldnast eins flókið og margir ímynda sér. Á rafrænu skattframtali liggur megnið af nauðsynlegum upplýsingum þegar fyrir. Tekjur, skuldir og eignir eru að stórum hluta forskráðar og fyrir flesta snýst verkefnið um að fara yfir það með gagnrýnum augum frekar en að fylla út heilt framtal. . Nýttu tækifærið til að skoða fjármálin þín Við yfirferð skattframtalsins gefst eitt af fáum tækifærum ársins til að staldra við og fá heildaryfirsýn yfir fjármálin. Hvernig þróuðust tekjurnar á árinu? Stóðu þær í stað eða jukust? Hversu stór hluti þeirra fór í vexti og annan fjármagnskostnað? Hefur skuldastaðan þyngst meira en þú gerðir þér grein fyrir? Slík yfirsýn getur verið ótrúlega dýrmæt, ekki aðeins fyrir skattaskilin, heldur fyrir betri stjórn á eigin fjármálum. En þó margt sé forskráð er ekki sjálfgefið að allar upplýsingar séu réttar. Framtalsvinnan snýst ekki eingöngu um að smella á „staðfesta“, heldur að fara yfir gögnin með gagnrýnum augum. Hjá sumum geta framtalsskil verið flóknari, t.d. vegna aukatekna, verktakagreiðslna eða frádráttabærs kostnaðar. Ef eitt ráð ætti að sitja eftir að lestri loknum, þá er það þetta: Að opna framtalið Markmiðið er ekki að klára allt í einni lotu í fullkominni yfirferð. Fyrsta skrefið er einfaldlega að opna það. Um leið og það er gert minnkar verkefnið nánast samstundis. Óvissan víkur, hlutirnir skýrast og það sem virtist stórt verður allt í einu viðráðanlegt. Fyrsta yfirferð tekur oft mun skemmri tíma en hugurinn hafði gert ráð fyrir og þá er stærsta hindrunin þegar að baki. Reynist framtalið flóknara en búist var við þarf enginn að leysa það einn. Margir kjósa að leita til fagaðila, ekki endilega vegna þess að þeir geti ekki fyllt út framtalið sjálfir, heldur vegna þess að það veitir hugarró. Að vita að sérfræðingur hafi farið yfir málin getur verið vel þess virði. Þegar allt kemur til alls er helsta hindrunin sjaldnast innihaldið, heldur byrjunin. Framtalið er verkfæri til að skapa skýra yfirsýn yfir eigin fjármálastöðu og ganga frá því sem þarf. Eins og með flest sem frestað er reynist léttirinn oft meiri en búist var við þegar fyrsta skrefið er tekið. Stundum er það nefnilega erfiðasta skrefið — að opna framtalið. Höfundur er skattasérfræðingur hjá KPMG Law. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Sjá meira