Þjóðverjar óttaslegnir að missa sleðaíþróttirnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. febrúar 2026 16:32 Þýskaland þykir sterkasta sleðaþjóð heims. Al Bello/Getty Images Þjóðverjar sofa ekki lengur vært á nóttunni enda eru þeir í hættu á að missa sína helstu gullgæs út af Vetrarólympíuleikunum.
Til umræðu er að taka baksleða, magasleða og bobbsleða af dagskránni á næstu Vetrarólympíuleikum. Íþróttirnar þykja ekki nógu vinsælar til að svara fyrir kostnaðinn og slæmu umhverfisáhrifin sem þeim fylgja. Á nýafstöðnum leikum í Mílanó og Cortina vann Þýskaland 19 af 26 verðlaunum sem voru í boði í sleðaíþróttunum, þar af 6 af 8 gullverðlaunum. „Þetta eru tíðindi sem gera manni ókleift að sofa rólega“ sagði magasleðagoðsögnin Georg Hackl við Sport1 í Þýskalandi þegar leitað var viðbragða. Vonandi allavega á næstu tveimur Vetrarólympíuleikum Hann er þó bjartsýnn á að sleðaíþróttirnar verði meðal keppnisgreina á allavega næstu tveimur Vetrarólympíuleikum, því sleðabrautir eru nú þegar til staðar í frönsku Ölpunum og Salt Lake City. „En eftir það er allt í lausu lofti“ sagði Georg við Sport1. Ævintýri í anda Cool Runnings á enda? Sleðaíþróttirnar segir hann hafa gefið smærri þjóðum tækifæri til að komast á Vetrarólympíuleikana. Sömuleiðis hafi íþróttafólk, sem mistókst í öðrum greinum, getað lagt fyrir sig sleða. Eins og frægt varð í bíómyndinni Cool Runnings. „Við höfum séð keppendur frá þjóðum eins og Jamaíku, Brasilíu og Ástralíu, þjóðum sem stunda vanalega ekki vetraríþróttir, ná góðum árangri í sleðaíþróttum.“ Georg bætti þá við að ef sleðaíþróttirnar hverfa af Vetrarólympíuleikunum, muni þær líklega hverfa algjörlega. „Án Ólympíuleikanna verða hlutirnir erfiðir. Við missum mikið fjármagn, samstarfsaðila, sjónvarpsumfjöllun, og þá er þetta í raun bara búið spil.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Vetrarólympíuleikar 2030 í frönsku Ölpunum Ólympíuleikar Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Bakgarðshlaupið: Soðnar kartöflur besta nestið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Dagskráin í dag: Bónus-deildin hefst með látum Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Sjá meira