„Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2026 09:01 Snorri Steinn var léttur þegar hann var spurður út í miðamálin á næsta HM. Vísir/Lýður/Vilhelm Miðamál voru mikið til umræðu á meðan Evrópumóti karla í handbolta stóð yfir, þá sérlega í kringum úrslitahelgina í Danmörku. Landsliðsþjálfari Íslands gerði mótið upp á dögunum og segir betur mega fara, næst þegar Ísland kemst svo langt. Hann þorir þó ekki að ábyrgjast miðakaup á undanúrslit næsta árs.
Þegar Ísland komst í undanúrslit á EM í janúar var það í fyrsta sinn í 16 ár sem liðið kemst svo langt. Við blasti hins vegar strembin staða. HSÍ fékk aðeins úthlutað 100 miðum á undanúrslitaleikinn við Dani. Meira og minna allir miða hússins fóru í almenna sölu og lítið sem stóð eftir fyrir þau lið sem komust ásamt Dönum í undanúrslitin. HSÍ náði með herkjum að fjölga miðunum umtalsvert og eftir erfiða bið komst stuðningssveit Íslands, Sérsveitin, til að mynda á leikinn - sem ekki var útlit fyrir að myndi raungerast í fyrstu. Fyrirkomulagið var víða gagnrýnt en því er velt upp hvað sé til ráða. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, gerði mótið upp í viðtali við Sýn á dögunum og spurður hreinlega hvort Íslendingar þyrftu að fara að huga að því strax núna að kaupa miða á úrslitahelgina á HM í Þýskalandi á næsta ári? Snorri hló áður en hann svaraði: „Ef ég þekki ykkur rétt, þá er það umræðan. En ég ætla ekki að hvetja fólk til þess,“ segir Snorri og hlær. „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því ef ég kem liðinu ekki alla leið,“ bætir hann við léttur. „Auðvitað finnst mér það mjög spes, sama hvort þú spilar í Danmörku eða annarsstaðar, að þú spilir í 15 þúsund manna höll og hver þjóð geti átt von á 100 miðum. Það er helvíti lítið,“ segir Snorri. „Ég held að Danirnir hefðu alveg fundið stuðning þó þeir hafi verið 13 þúsund og 500 Íslendingar.“ „En þetta hefur væntanlega alltaf verið svona, við skulum ekki gleyma því. Við erum að komast þarna í fyrsta skipti í 16 ár og þekkjum ekki alveg þessa stöðu. Við þurfum bara að læra af því. Ég held að HSÍ geri það alveg. Ef og þegar við komumst aftur þarna verða vonandi fleiri en hundrað,“ segir Snorri Steinn. Viðtalið má sjá í spilaranum. Umræðan um miðamálin hefst þegar 24 mínútur og 13 sekúndur eru liðnar á viðtalið.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 HSÍ HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira