ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 20:01 Björgvin Hólmgeirsson í leik með ÍR-ingum fyrir nokkrum árum síðan. Vísir/Andri Marinó Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Freyr Guðmundsson hafa báðir tekið skóna af hillunni og eru til í slaginn með ÍR í bikarúrslitaleiknum á móti Haukum á morgun.
ÍR-ingar leituðu til þessara reynslubolta þar sem markahæsti leikmaður liðsins, Baldur Fritz Bjarnason, meiddist illa í undanúrslitaleiknum og mikil óvissa er um þátttöku hans í úrslitaleiknum. Björgvin setti skóna upp á hilluna eftir tímabilið 2022/2023 með Stjörnunni en hefur verið framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍR síðan haustið 2013. Arnar Freyr hætti einnig eftir það tímabil en hann er aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í dag. „Mikil óvissa ríkir um það hvort Baldur Fritz verði leikfær í bikarúrslitunum á morgun. Til að bregðast við mögulegri fjarveru hans hafa kempurnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Freyr Guðmundsson samþykkt að draga fram skóna til að styðja við ungu strákana okkar og við treystum á að þið hin gerið það líka,“ segir í tilkynningu IR-inga. ÍR-ingar eru þarna að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik í tólf ár og þeir hafa ekki orðið bikarmeistarar síðan árið 2013. Haukar unnu þá 33-24 sigur á Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum og markahæsti maður vallarins var umræddur Björgvin Hólmgeirsson með átta mörk og ekkert þeirra kom úr víti. Árið eftir tapaði ÍR á móti Haukum í bikarúrslitaleiknum. Björgvin var einnig með þegar ÍR varð bikarmeistari árið 2005 en þá bara nýbyrjaður í meistaraflokki.
Powerade-bikarinn ÍR Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira